Það er mikill léttir þegar sólin fer að hækka á lofti eftir langan dimman vetur. En rysjótt veðrátta í janúar verður oft til þess að við fáum minni útiveru og þar af leiðandi njótum ekki þeirrar litlu birtu sem er í boði. Dagsbirta er mikilvægur orkugjafi. Þó að við sem búum í raflýstum húsum séum kannski ekki eins meðvituð um mikilvægi hennar. En við finnum vissulega áhrifin í skammdeginu.
Þegar myrkrið liggur yfir þurfum við að finna okkur aðrar leiðir til að endurnærast. Andardrátturinn er líka orkugjafi sem við hugsum ekki oft um. Hann bara er þarna. En þrátt fyrir allt er hann nú samt ómissandi lífgjafi. Öndunin er samofin innra ástandi okkar. Öndunin endurspeglar hvernig okkur líður og hvernig við upplifum heiminn. Þegar við öndum grunnt og hratt þá upplifum við heiminn og okkur sjálf á annan hátt en þegar við öndum djúpa langa öndun.
Taugakerfið okkar sendir fleiri boð frá líkama til heila en frá heilanum til líkamans. Þegar við sitjum samanhnipruð og öndum grunnt og hratt þá erum við að segja heilanum að við séum í streituástandi. Við erum að segja heilanum að við þurfum annað hvort að berjast eða hlaupa í burtu.
Algengast er að konur andi 18-20 andadrætti á mínútu og karlar andi 16-18 sinnum á mínútu. Ef við hægjum meðvitað á andardrættinum hefur það mikil áhrif á okkur. Hugurinn verður viðráðanlegri og skýrari. Við höfum sterkara samband við hann og getum betur valið viðbrögðin okkar í daglegu lífi. Öndun og hreyfingar hennar eru tengdar hreyfingum allra tilfinninga og hugsana. Ef þú eykur gæði andardráttarins, eykurðu lífsgæði þín.
Kundalini jóga er prana jóga og leggur mikla áherslu á öndunina. Kundalini jógatími er í raun öndunaræfing frá upphafi til enda. Við notum oft kröftugar öndunaræfingar sem hafa djúp áhrif á taugakerfið, innkirtlakerfið og ónæmiskerfið. Og við finnum áhrifin sterk eftir hvern tíma.
Kundalini jóga er sérstaklega gagnlegt þegar kemur að áföllum og streitu. Þeir sem stunda það reglulega tala um miklar breytingar á orkuflæði og líðan. Meðal þess sem gerir Kundalini jóga svona gagnlegt eru taktfastar hreyfingar, endurnærandi öndun og öndunaræfingar, hugleiðsla, möntrur og sú djúpa slökun sem fylgir iðkuninni.