Heilsa og hamingja

  • Viltu fá stuðning við að skoða heilsu og andlega líðan heildrænan hátt?
  • Líkami, hugur og sál eru ein heild
  • Ertu að glíma við heilsufarslegt ójafnvægi, verki eða veikindi sem há þér í daglegu lífi?
  • Viltu finna þína leið í lífinu og skilja betur hvar þú stendur?
  • Er eitthvað sem þú hefur aldrei unnið úr?
  • Viltu koma þér upp andlegri iðkun sem styður þig í daglegu lífi?

Einkatímar og heildræn ráðgjöf sniðin að þínum þörfum. Hafðu samband og við finnum út úr því hvernig við getum best unnið saman.

Einkatímar

Hægt er að velja um að koma á staðinn eða hittast í gegn um netið.

Jógaþerapía og markþjálfun

FÁÐU STUÐNING VIÐ AÐ SETJA HEILSU OG GÓÐA LÍÐAN Í FORGANG

Lífsstíll og mataræði sem hentar þér og þinni líkamsgerð. Við skoðum í sameiningu einfaldar breytingar sem þú getur gert, eitt skref í einu til að skapa meiri vellíðan og gleði í lífinu. Þetta geta verið öndunaræfingar, jóga, hugleiðsla, mataræði, dagleg rútína, næstu skref í lífinu, úrvinnsla tilfinninga eða annað sem við finnum út í sameiningu. Í stað þess að hugsa um það sem þú vilt ekki getum við sett fókusinn þangað sem þú vilt vera.

Hómópatía

VIRKJAÐU LÆKNINGAMÁTT LÍKAMANS Á HEILDRÆNAN HÁTT

Mild og náttúruleg heilsumeðferð. Ef þú kemur til hómópata með vandamál eins og krónískar sýkingar, hormónaójafnvægi eða mígreni þá virkar meðferðin á líkama og huga sem heild. Árangurinn er ekki bara bætt heilsa heldur líka aukin orka og betra jafnvægi tilfinningalega. Hómópatía hefur reynst vel gegn ýmsum kvillum eins og asma, ofnæmi, kvíða og eftirköstum eftir Covid. Hómópatía hentar líka sérstaklega vel samhliða sálfræðimeðferð.

Fókusing

LÆRÐU AÐ HLUSTA Á ÞITT INNRA LANDSLAG Á KÆRLEIKSRÍKAN HÁTT

Aðferð sem sem kennir þér að hlusta á visku líkamans með forvitni og sjálfsmildi að leiðarljósi. Fókusing býður okkur að tengja við dýpri stað í okkur sjálfum en bara hugsanir og tilfinningar. Það sem áður var fast eða óskýrt færist nær og vandamálið sem þú byrjaðir að skoða í upphafi „hreyfist áfram“. Þú skilur það á nýjan og ferskan hátt. Þessum nýja skilningi fylgir jákvæð umbreyting á lífi þínu. Fókusing getur t.d. nýst við úrvinnslu tilfinninga, ákvarðanatöku, sem leið til að skilja aðstæður þínar betur, ákveða næstu skref og í sköpun.

Bowen

LOSNAÐU VIÐ VERKI, SPENNU OG EFTIRSTÖÐVAR ÁVERKA

Mild bandvefslosunartækni sem losar um spennu og slakar á líkama og huga. Við það losnar um verki og það verður endurnýjun á orku. Bowen hefur reynst vel gegn verkjum í hálsi, bakverkjum og verkjum almennt, íþróttameiðslum og öðrum meiðslum, streitutengdum vandamálum og fyrir almenna heilsu, slökun og vellíðan.

Líföndun

SPENNULOSUN OG KRAFTMIKIL ÖNDUNARVINNA

Öndunin endurspeglar þína innri líðan og viðhorf til þín og til lífsins. Líföndun er öndunarvinna með stuðningi þar sem þú losar um spennu og kyrrstæða orku og finnur fyrir kjarnanum í þér. Við skoðum í byrjun tímans hvað það er sem þú vilt vinna með og leyfum svo önduninni að leysa upp hindranir í líkamanum. Stundum fylgir því tilfinningalosun. Hugurinn verður skýrari og á eftir fylgir djúp slökun.

Námskeið í boði

Námskeiðin okkar snúast um að skapa öruggt rými til að fara inn á við og tengja við kjarnann.
Hægt er að velja um að koma á staðinn eða hittast í gegn um netið.

ANDARTAK – RÁNARGÖTU 18

Námskeið í Fókusing

Lærðu að hlusta á visku líkamans. Fókusing getur t.d. nýst við úrvinnslu tilfinninga, ákvarðanatöku, sem leið til að skilja aðstæður þínar betur, ákveða næstu skref og í sköpun.

Hefst í október

Við bjóðum upp á fleiri námskeið. Þú sérð úrvalið á námskeiðssíðunni.

KYNNINGARSAMTAL

Viltu kanna hvort við eigum samleið?

Umsagnir viðskiptavina

„Þú ert einstaklega góður hlustandi og átt auðvelt með að skapa traust. Þú skapar auðveldlega gott flæði í tíma, hvort sem er í hóp eða í einkatíma.”

GUNNAR ÞORGEIRSSON, TÓNLISTARKENNARI

„Ég hef þekkt Guðrúnu í mörg ár og leitað til hennar bæði sem hómópata, nuddara, yogakennara og nú nýverið prufað Focusing undir hennar handleiðslu. Hún hefur einstaklega hlýja nærveru og það er auðvelt að tala við hana og trúa henni fyrir hverju sem er. Hún er opin, næm, úrræðagóð og hefur áralanga reynslu í hómópatafræðum. Hennar ráð og remedíur hafa hjálpað mér og mínum börnum að vinna á ýmsum kvillum. Næmni hennar og innsæi eru góðir styrkleikar að hafa, þegar hún leiðir mann í Fókusing. Sú aðferð hefur komið mér skemmtilega á óvart.”

ELÍN KJARTANSDÓTTIR, ARKITEKT

„Hjá Guðrúnu hef ég öðlast betri heilsu og tekist á við líkamleg veikindi sem læknavísindin réðu ekki við t.d. astma og bólgur í lungum. Með árunum hef ég lært að treysta visku hennar betur og betur. Hún hlustar vel. Spyr og gefur sér góðan tíma. Hún er hvetjandi og ráðagóð, sveigjanleg og setur sig í spor sinna skjólstæðinga. Ég fer reglulega til Guðrúnar og hef gert nú í nokkur ár. Ég á henni margt að þakka og hennar remedíur hafa fært mér heilsuna oftar en einu sinni og oftar en tvisvar.”

HREFNA GUÐMUNDSDÓTTIR, FÉLAGSRÁÐGJAFI

Nám og lengri

viðburðir

2024

Hugleiðsluhelgi

Djúpt ferðalag inn á við

Febrúar 2024. Staðsetning: Síðumúla 15, 3. hæð

Helgarnámskeið. Leiðbeinandi: Guðrún Arnalds

Næsta vetur

Lærðu að kenna hugleiðslu

Hugleiðsla, öndun og möntrur.

Dýpkaðu þína eigin hugleiðsluiðkun um leið og þú lærir að kenna öðrum að hugleiða

Skráðu þig á lista yfir áhugasama ef þú vilt fá sendar nánari upplýsingar.

Hugleiðsla fyrir friðsælt hjarta

Allir geta lært að hugleiða. Hér er hugleiðsla til að prófa heima. Hún er um leið öndunaræfing. Nærandi stund með þér. Skráðu þig hér til hliðar og þú færð senda upptöku til að fylgja. Skráningunni fylgir aðgangur að fréttabréfinu okkar.

Ertu með spurningar?

Fylltu út formið hér að neðan til að senda mér fyrirspurn eða panta tíma. Ekki hika við að senda mér línu. Ég geri mitt besta til að svara innan 24 tíma.

8 + 3 =

Kontakt upplýsingar

Hafðu samband við mig beint í gegn um síma eða tölvupóst:

Einkatímar: Ránargötu 18 / Jógatímar: Síðumúla 15 - Yoga og heilsa