Innri gagnrýnandinn

Hefur þér einhvern tíma fundist þú ekki geta gert neitt rétt? Segirðu stundum hluti við sjálfa-n þig sem þú myndir aldrei segja við aðra manneskju? Það gæti hjálpað að vita að þú ert ekki sá eini eða sú eina.

Innri gagnrýnandinn er staður í þér sem trúir því að þú eða eitthvað í þér þurfi að breytast til að þú sért í lagi.

Sjálfsgagnrýni er sársaukafull. Það er auðvelt að láta bugast undan neikvæðni og leiðinlegum athugasemdum sem við beinum að okkur sjálfum. Stundum án þess að taka eftir því.

Ef við reynum að þagga niður í gagnrýnandanum verður hann bara stærri. Sem betur fer er til önnur leið.

Hugtakið “innri gagnrýnandi” er í raun ekki alveg lýsandi fyrir það sem við erum að tala um. Við notum það hér af því það er auðveldasta leiðin til að vísa til þess. En það er kannski nær lagi að tala um innra umhverfi.

Innri gagnrýni birtist venjulega ekki sem rödd. Fyrir marga birtist hún í formi líkamsskynjunar. Þrengsli í hálsinum eða í brjóstinu hnútur í maganum, kvíði, vanmáttarkennd eða skömm, Til dæmis þegar okkur finnst við vera slæmt foreldri eða vanhæf í því sem við erum að glíma við. Þú heyrir ekki gagnrýnina en þú finnur áhrifin

Það eru til leiðir til að takast á við innri gagnrýni á friðsamlegan hátt. Sjálfsmildi er mikilvægur þáttur í að lifa hamingjuríku, friðsælu lífi.

Flokkar

Nýjast

Hvað viltu vökva í þínum garði?

Hvað viltu vökva í þínum garði?

Við fluttum inn á nýtt heimili rétt fyrir jólin. Og í gær fékk ég heimsókn sem ég hafði lengi beðið eftir með eftirvæntingu: Garðyrkjumaður sem hjálpaði mér að endurskipuleggja garðinn. Ég nýt þess að vinna í garðinum en stundum hefur mig vantað stuðning við að sjá...

Árstíðirnar í líkamanum

Árstíðirnar í líkamanum

Náttúran umbreytist við hver árstíðaskipti. Hvalir ferðast langar leiðir, fuglar fljúga heimshorna á milli  til að laga sig að umskiptum árstíðanna. Laufin falla af trjánum.  Hver einasta lífvera gerir breytingar í lífsháttum sínum, dvalarstað og rútínu. Allar...

Þrjú lítil skref inn í vorið

Þrjú lítil skref inn í vorið

Náttúran speglar svo vel til okkar hvernig við getum tekist á við breytingar. Vorið kemur ekki með áhlaupi. Það vaknar hægt og hljótt. Dagarnir lengjast og birtan vex með hverju kvöldinu. Loftið hlýnar. Lífið vaknar niðri í moldinni og læðist upp á yfirborðið, næstum...

Um mig

Ég heiti Guðrún. Jógakennari, rithöfundur, markþjálfi og hómópati.

Ég elska að skrifa. Skrif hjálpa mér að heyra hvísl lífsins í gegn um skarkala heimsins.

Ég styð fólk í að finna jafnvægi í óstöðugum heimi. Að gefa heilsunni rými og hlusta eftir því sem hjartað býður, fram hjá sjálfsgagnrýni og kröfum umhverfisins. Að horfa út, ekki bara um augun í höfðinu heldur líka augu líkamans. Og að skynja töfrana sem búa í Andartakinu.