Þegar líkaminn skiptir um takt á vorin

Vorið er tími töfra og umbreytinga.

Náttúran kemur úr klakaböndum og köldum raka vetrarins og inn í vorið.
Lífspúlsinn tekur kipp, jörðin fer að hlýna og grænir sprotar teygja sig upp á móti ljósinu.

Náttúran gerir þetta stundum með miklum látum. Eins og erum að sjá þessa dagana. En hún virðist samt sem áður eiga svo auðvelt með þetta Fyrir okkur manneskjurnar er það oft ekki eins áreynslulaust að taka á móti nýjum árstíðum.

Ferðalagið úr vetri yfir í vor getur tekið á.

Oft finnum við fyrir þunga og drunga –
eins og úrillur björn sem kemur hikandi út úr vetrarhýðinu.

Kannski er þetta eitthvað sem þú tengir við…

Að vera þreytt og þung – þrátt fyrir lengri og bjartari daga
Að finna fyrir löngun í breytingar
en eiga erfitt með að koma þér af stað í að framkvæma þær

Líkaminn er að fara úr einum takti yfir í annan.
Og það gerist ekki alltaf mjúklega.

Og eftir miðjan aldur verður líkaminn oft viðkvæmari fyrir þessum breytingum.

Við höfum búið okkur til vetrarkápu – bæði líkamlega og andlega
og á vorin þurfum við smám saman að létta á henni og koma okkur út úr vetrarhýðinu.

Annars getur orkuflæðið orðið þungt eða skrykkjótt
og við fundið fyrir aukinni þreytu, spennu, þyngslum eða farið að fá vorpestir.

Mig langar að bjóða þér á opna vorvinnustofu þar sem við förum dýpra inn í þetta:

Úr vetrardvala í vorgleði
29. apríl kl. 17:15

Þar skoðum við hvernig þú getur stutt líkamann í þessum tímamótum
og hjálpað honum að færa sig mjúklega yfir í nýjan takt.

Þú getur skoðað það nánar hér: Úr vetrardvala í vorgleði

Flokkar

Nýjast

Árstíðirnar í líkamanum

Árstíðirnar í líkamanum

Náttúran umbreytist við hver árstíðaskipti Hvalir ferðast langar leiðir, fuglar fljúga heimshorna á milli  til að laga sig að umskiptum árstíðanna. Laufin falla af trjánum.  Hver einasta lífvera gerir breytingar í lífsháttum sínum, dvalarstað og rútínu. Allar lífverur...

Þrjú lítil skref inn í vorið

Þrjú lítil skref inn í vorið

Náttúran speglar svo vel til okkar hvernig við getum tekist á við breytingar. Vorið kemur ekki með áhlaupi. Það vaknar hægt og hljótt. Dagarnir lengjast og birtan vex með hverju kvöldinu. Loftið hlýnar. Lífið vaknar niðri í moldinni og læðist upp á yfirborðið, næstum...

Þegar vorið kallar en veturinn er tregur að gefa eftir

Þegar vorið kallar en veturinn er tregur að gefa eftir

Það var ljúft og frískandi að koma út í birtuna í morgun. Og ég naut þess að finna vorið sem er loksins að vakna allt í kringum okkur. Hundurinn minn hafði sérstakan áhuga á tveimur gæsum sem spígsporuðu um grasið í garði eins nágranna míns. Svo tóku þær flugið með...

Um mig

Ég heiti Guðrún. Jógakennari, rithöfundur, markþjálfi og hómópati.

Ég elska að skrifa. Skrif hjálpa mér að heyra hvísl lífsins í gegn um skarkala heimsins.

Ég styð fólk í að finna jafnvægi í óstöðugum heimi. Að gefa heilsunni rými og hlusta eftir því sem hjartað býður, fram hjá sjálfsgagnrýni og kröfum umhverfisins. Að horfa út, ekki bara um augun í höfðinu heldur líka augu líkamans. Og að skynja töfrana sem búa í Andartakinu.