Stærri en streitan

Jóga fyrir orku, endurnæringu og innri frið

Aukin lífsorka og kyrr hugur stækka okkur og þá verða vandamálin viðráðanlegri. Umbreyttu streitu í gleði og gerðu hana að vini þínum.

 

 

Ellefu vikur. Miðvikudaga kl 17. 

Á námskeiðinu skoðum við hvernig við getum ræktað með okkur aukna orku, kyrrð, hugrekki og seiglu og þannig orðið stærri en streitan.

Notalegt og hvetjandi andrúmsloft, eflandi jógaæfingar, djúp slökun og endurnærandi hugleiðsla í lokin. Sterkur líkami, hugrökk sál og friðsæll hugur.

Verð: 43.000. Velkomið að skipta greiðslum

Ef þig langar að vera með en sérð fram á að komast ekki í alla tímana þá er velkomið að hafa samband og við finnum út úr því saman. Hafa samband

Námskeiðið er viðurkennt af Virk, starfsendurhæfingu

Stærri en streitan

Öndun, líkamlegar æfingar og hugleiðsla sem hjálpa líkamanum að losa um spennu, draga úr kvíða og auka innri vellíðan. Við vinnum í að styrkja tauga-, innkirtla og ónæmiskerfi og auka samhæfingu þeirra. Árangurinn er bættur svefn og aukinn hæfileiki til að takast á við streitu á jákvæðan og uppbyggjandi hátt. Tímarnir eru fyrst og fremst jógaiðkun og þátttakendur fá senda fræðslu og innblástur fyrir iðkunina og fyrir daglegt líf.

  • Streita og kundalini jóga
  • Lífsstíll og mataræði fyrir þína líkamsgerð
  • Mataræði fyrir dimmustu vetrarmánuðina
  • Innri birta, lykill að hamingju og heilbrigði
  • Taugakerfið og polyvagal kenningin

Streita á sér mörg birtingarform eins og svefnleysi, kvíða, bólgur í líkamanum, of háan blóðþrýsting og krónísk veikindi svo eitthvað sé nefnt.

Jóga er mjög áhrifarík leið til að takast á við streitu. Bæði vegna endurnærandi og jákvæðra áhrifa á líkamann og ekki síður vegna þess það færir okkur lífsorkufulla gleði, hugarró og sjálfsmildi. Taktfastar hreyfingar kundalini jóga í takti við andardráttinn styðja þig í að endurheimta eðlislæga lífsorku og setjast inn í kyrran stöðugleika innra með þér.

Staður: Síðumúla 15. Einnig er í boði að taka þátt í gegn um netið úr stofunni heima. Stund: Miðvikudaga kl 17.00, 10 vikur
Verð: 43.000

Umsagnir

“Yndislegar stundir og góðar æfingar. Ekki of auðvelt. Þægileg tónlist og gongið er alveg frábært. Róandi og gott, góð hreyfing og gott andrúmsloft. Ég hlakka alltaf til að koma.”

SIF SIGFÚSÓTTIR

“ Það að iðka kundalini gefur mér meiri gleði og orku. Það skiptir mig miklu máli, ekki síst fyrir andann. Það sem mér fannst best við námskeiðið eru rólegheitin og stressleysið en samt alvöru æfingar. Gott fyrir líkama og sál, kyrrir hugann, eykur orku og lífsgleði.
Það er ómetanlegt að taka skrefið og byrja aftur í kundalini yoga, fagleg og frábær kennsla og utanumhald. Góðar skýringar.”

GUÐRÚN ERNA HREIÐARSDÓTTIR

“Það sem ég fékk út úr námskeiðinu er liðleiki, minni verkir, betri svefn, dýpri öndun og meiri meðvitund um mikilvægi þess að hægja á lífinu. Og að komast í rólegt, notalegt andúmsloft sem fylgir þinni útgeislun Guðrún í tímunum.

Tímarnir eru mér lífsnauðsynlegir til að halda “sönsum” í hraða samfélagsins. Þeir hafa haldið vefjagigtinni sofandi hjá mér. Ég legg af stað í tíma stíf og með hausverk sannfærð um að ég geti ekki hreyft mig. Svo smátt og smátt í tímanum lekur stirðleikinn af mér og ég kem allt önnur Íris út úr tímanum. Höfuðverkurinn farinn og líkaminn mýkri. Ég er að ná dýpri andardrætti, eins og umfang lungnanna sé hægt og rólega að stækka. ”

ÍRIS REYNISDÓTTIR

“Námskeiðið styrkti mig og efldi. Góð fræðsla, mikilvæg umræða, jógaiðkun og hugleiðsla í lokin. Allt gaf þetta góða upplifun sem ég bý að á eftir. Ég öðlaðist meiri styrk, opnari huga og bætta vellíðan. Takk fyrir gott námskeið! ”

ANNA HEIÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR

“Jóga er alltaf gott en þetta jóga finnst mér styðja betur við heildina, líkama og sál. Ég hef verið að takast á við erfiða hluti en finn samt hvað ég er miklu jákvæðari og orkumeiri. Ég finn að öndunin hefur batnað mikið hjá mér. Bestu þakkir fyrir mig og ég hlakka til að byrja aftur.”

SIGRÍÐUR SIF SÆVARSDÓTTIR

Jafnvægi á huga, líkama og sál

Líf flestra í dag er komið úr takti við hjartsláttinn, við flæði lækjarins og óendanleika himinsins. Þar liggja svörin. Djúpt í rótum okkar sjálfra.

  • Leyndardómur lifsins…

    Jóga gefur þér tækifæri til þess að verða forvitin um það hver þú ert. Leyndardómur lífsins er ekki vandamál til að leysa heldur veruleiki til að upplifa

Þjónusta sem er í boði

Vorið kallar!

Jóga,jógaviska og uplyftandi hugarfar inn í vorið.

Æfingar sem endurnæra huga líkama og sál og byggja upp lífsorku. Vorið kemur með nýtt upphaf, ferska vinda og innblástur til að tileinka okkur heilbrigðan lífsstíl.

Æfingar sem endurnæra huga líkama og sál og byggja upp lífsorku. Jóga, djúp slökun og hugleiðsla.

6 vikna námskeið hefst 8. maí. Miðvikudaga kl 17
.

Einkatímar

Fáðu stuðning við að setja heilsu og góða líðan í forgang.

Heildrænt heilsuviðtal, hómópatía, markþjálfun, bowen, jógaþerapía, Fókusing.

Einkatímar og heildræn ráðgjöf sniðin að þínum þörfum. Hafðu samband og við finnum út úr því hvernig við getum best unnið saman.

Blómstraðu á breytingaskeiði

Netnámskeið sem hjálpar þér að endurnýja lífsorkuna,
sofa - og skilja betur breytingaskeiðið.

Fyrir konur sem sem leita náttúrulegra leiða fyrir aukna orku, hormónajafnvægi og góða heilsu. Og sem vilja gera eitthvað sjálfar til að létta á einkennum breytingaskeiðsins.

Skráðu þig á biðlista fyrir næsta námskeið

Hugleiðsla fyrir friðsælt hjarta

Allir geta lært að hugleiða. Hér er hugleiðsla til að prófa heima. Hún er um leið öndunaræfing. Nærandi stund með þér. Skráðu þig hér til hliðar og þú færð senda upptöku til að fylgja. Skráningunni fylgir aðgangur að fréttabréfinu okkar.