Sumarhugleiðsla
Nýtt upphaf: Allt er hægt
Langar þig að hugleiða heima í sumar með stuðningi? Ég býð þér að taka þátt í hugleiðsluferðalagi með mér yfir sumarmánuðina.
Dagleg hugleiðsla er gott akkeri að hafa í annríki dagsins, hvort sem er heima eða á ferðalagi. Hún gefur okkur færi á að hlaða batteríin, að finna friðsæld og koma heim til okkar sjálfra aftur og aftur. Dagleg hugleiðsla gefur mér ákveðna reglu í óreglunni, stund með sjálfri mér og stundum gæðastund með mínum nánustu.
Innifalið:
- Kynningar- og leiðbeiningarmyndband
- Hugleiðslumyndbönd í mismunandi lengd til að velja úr og nota þegar þú hugleiðir
- Stutt jógaiðkun til að fylgja þá daga sem þú hefur nægan tíma.
- Hvatningarpóstur vikulega til innblásturs og stuðnings
- Blað til að prenta út og telja dagana í hugleiðslu
- Þú verður hluti af samfélagi annarra iðkenda, sem getur verið bæði styðjandi og hvetjandi og minnir okkur á að við tilheyrum stærri hópi fólks sem vill vaxa og finna frið.
Leiðbeinandi: Guðrún Arnalds, jógakennari
Verð: Vortilboð fram til 24. júní: 9000. Fullt verð 12.000
Hugleiðslan: Nýtt upphaf – allt er hægt!
Hugleiðslan okkar byggir á möntru og djúpri öndun. Mantra gefur huganum góða næringu og friðsæld. Þegar við hægjum á andardrættinum hægist á huganum. Þessi mantra er til að hreinsa burtu neikvæðni úr fortíð og nútið svo við getum stigið inn í jákvæða framtíð. Að taka burtu hindranir og gera hið ómögulega mögulegt. Hún styður hugann í að flæða, að sleppa áhrifum fortíðarinnar og opna þig fyrir allsnægtaborði lífsins. Svo þú getir skapað og lifað ánægjuríku lífi.
Það er ekki lengd hugleiðslunnar sem skiptir aðalmáli heldur hversu oft og reglulega við hugleiðum. Hugleiðsla í 3 mínútur hefur mjög djúp áhrif ef hún er gerð daglega.
Áhrif af því að hugleiða daglega
- Dregur úr áhrifum streitu
- Jákvæð áhrif á streitutengda kvilla eins og of háan blóðþrýsting, hjartavandamál, meltingarvandamál, höfuðverki, þunglyndi og kvíða
- Aukin friðsæld og jafnaðargeð. Við getum betur valið viðbrögðin okkar
- Ver heilann gegn áhrifum öldrunar
- Gefur skýran fókus og bætir athyglisgáfuna
Rannsóknir sýna að dagleg hugleiðsla hefur sömu áhrif og lyf gegn þunglyndi, kvíða og öðrum tilfinningalegum vandamálum.
Uppspretta hamingjunnar er ekki fyrir utan okkur. Hugleiðsla þjálfar hugann í að dvelja ekki í fortíðinni eða velta sér upp úr framtíðinni, heldur setjast inn okkur sjálf og sjá fegurðina í kring um okkur, í því sem er.
Allt sem heimsækir hjarta þitt er gestur frá hinni ósýnilegu veröld. Taktu vel á móti því. Rumi
Umsagnir
Sumarhugleiðsla
Við getum styrkt kyrrðina innra með okkur eins og við styrkjum vöðva. Samskipti okkar við aðra verða mun ánægjulegri þegar við ræktum þessa kyrrð sem er okkur í raun eðlislæg. Í okkar háværa heimi er það bæði erfiðara en líka nauðsynlegra en nokkru sinni að eiga aðgang að djúpri alltumlykjandi þögn.
Dagleg hugleiðsla
Ef við hugleiðum í 3 mínútur þá hefur það áhrif á rafsegulsviðið, blóðrásina og stöðugleika blóðsins.
11 mín hugleiðsla hefur áhrif á taugarnar og innkirtlakerfið
22 mín hugleiðsla kemur jafnvægi á alla þrjá hluta hugans og þeir fara að vinna saman
31 mín hugleiðsla: Innkirtlar, öndun og einbeiting fara að hafa áhrif á frumur og takt líkamans.
Þjónusta sem er í boði
Lífið í jafnvægi
Ferðalag um orkustöðvarnar
Eflandi ferð í átt að aukinni sjálfsþekkingu, andlegum og líkamlegum styrk og bættri orku.
Við stöldrum við hverja orkustöð og vinnum með æfingar og hugleiðslur sem stuðla að auknu jafnvægi, meiri styrk og bættum hæfileika til að slaka á og njóta.
Einkatímar
Fáðu stuðning við að setja heilsu og góða líðan í forgang.
Heildrænt heilsuviðtal, hómópatía, markþjálfun, bowen, jógaþerapía, Fókusing.
Einkatímar og heildræn ráðgjöf sniðin að þínum þörfum. Hafðu samband og við finnum út úr því hvernig við getum best unnið saman.
Bætt líðan á breytingaskeiði
Fyrir konur sem leita náttúrulegra leiða fyrir aukna orku, hormónajafnvægi og góða heilsu. Og sem vilja gera eitthvað sjálfar til að létta á einkennum breytingaskeiðsins.
Skráning og nánari upplýsingar:
Svefntruflanir og hitakóf
Sjö vegvísar fyrir vellíðan á breytingaskeiði
- Lærðu leiðir til að draga úr hitakófi og sofa betur
- Hitakóf og nætursviti eru ekki það sama. Lærðu að skilja muninn og hvað líkaminn er að segja þér.
- Um hvernig mataræði og lífsstíll geta haft áhrif á einkennin þín.
- Fáðu dýpri skilning á hormónabreytingunum og hvað þú getur gert