Sjálfsmildi

og innri gagnrýni

Frítt netnámskeið.

Mánudaginn 16. október kl 17.15.

Við ætlum að skoða leiðir til að takast á við innri gagnrýni og til að finna sjálfsmildi í daglegu lífi. Ef við lærum að lifa með innri gagnrýnandanum verður lífið mun auðveldara

Innri gagnrýnandinn er staður í þér sem trúir því að þú eða eitthvað í þér þurfi að breytast til að þú sért í lagi

Sjálfsgagnrýni er sársaukafull. Það er auðvelt að láta bugast undan neikvæðni og leiðinlegum athugasemdum sem við beinum að okkur sjálfum. Stundum án þess að taka eftir því. Við segjum hluti við okkur sjálf sem við myndum aldrei segja upphátt, jafnvel ekki við fólk sem okkur líkar illa við. Við eigum það flest til að vera mjög hörð við okkur sjálf.

Sjálfsmildi er mikilvægur þáttur í að lifa hamingjuríku, friðsælu lífi.

Innri gagnrýnandinn

Það kannski kemur á óvart að heyra að innri gagnrýnandinn er með góðan ásetning. Hann er í raun þarna til að bjarga lífi okkar. Og eina leiðin sem hann kann til að verja okkur er að tala við okkur þannig að okkur líður hræðilega.

Ef við reynum að þagga niður í honum verður hann bara stærri.

Sem betur fer er til önnur leið. Á þessu stutta námskeiði ætlum við að skoða skref sem þú getur tekið til að breyta sambandi þínu við innri gagnrýnandann.

Fókusing

Við kynnumst aðferð sem heitir Fókusing sem kennir okkur að hlusta á líkamann og viskuna sem býr innra með okkur á nýjan og ferskan hátt.

Við bregðumst við lífinu hvert á sinn einstaka hátt. Streita og innra umrót birtist ekki eins í líkamanum hjá okkur öllum. Ef við hlustum djúpt getum við heyrt það sem lífið innra með okkur þarf til að halda áfram að flæða. Þegar ég gef rými fyrir það sem er hér og nú og leyfi því að vera eins og það er, þá breytist það.

Staður: Heima í stofu í gegn um Zoom.
Stund: Mánudaginn 16. október kl 17.15
Leiðbeinandi: Guðrún Arnalds, jógakennari, markþjálfi og leiðbeinandi í Fókusing (aðferð til að hlusta á líkamann og sína innri veröld)

Innri veröld þín er aldrei kyrrstæð. Þegar þú gefur henni athygli fer hún að hreyfast, umbreytast og finna næstu skref. Eins og fræ sem spírar þegar réttar aðstæður myndast.

 

Líkaminn veit svo margt sem við vitum ekki. Allt sem þarf til er að við hlustum af forvitni og með opinn huga.

 

Umsagnir

„Ég hef meiri samkennd með sjálfri mér og finnst ég vera að uppgötva alveg nýja hlið á sjálfri mér. Ég er sáttari. Næstum eins og ég sé að finna einhvern heim sem ég hef saknað. Mér finnst þetta hjálpa mér á allt annan hátt en td. sálfræðitími, en á hátt sem að ég tengi við og skil. Mér finnst að öllum ætti að vera kennt fókusing í skóla, bara eins og lífsleikni.”

SIGRÚN HALLA UNNARSDÓTTIR

„Námskeiðið gaf mér skýrari mynd af því hvað lífið er mikið ævintýri.
Fókusing er nýtt form til að kynnast þér og leysa úr læðingi sköpunarorkuna þína og nýja tengingu við tungumálið. Ég er þakklát fyrir nærveru og kennsluna, yndislegur hópur, hlakka til að halda áfram.”

GUÐRÚN VERA HJARTARDÓTTIR, LISTAKONA

„Ég öðlaðist aukna líkamsvitund, meira sjálfsmildi og aukna meðvitund. Og ég lærði að taka meiri ábyrgð á mínum tilfinningum. Góður félagsskapur, góðar umræður, gefandi. Sjálfsvinna.”

GUÐRÚN THEODÓRA HRAFNSDÓTTIR

Námskeið í Fókusing

Ég býð þér að koma með í ferðalag þar sem þú lærir upp á nýtt að hlusta. Að finna aftur veruna sem þú ert, sem veit hvernig hún á að vera með því sem er hér og nú. Að finna til aðdáunar á undrum lífsins. Að hlusta á aðra og á þína innri veröld. Það að hlusta á náttúruna innra með þér getur verið jafn endurnýjandi og gönguferð úti í skógi.

Þú lærir

  • Að rækta innra umhverfi þar sem þú upplifir friðsæld, opinn, forvitinn huga
  • Að mynda samband við það sem þú finnur svo breytingar verði af sjálfu sér og án áreynslu
  • Af hverju það færir okkur ekki varanlegar breytingar að reyna að laga, breyta okkur eða losna við tilfinningar, eiginleika eða hegðun
  • Af hverju það er svona mikilvægt að finna það sem þú skynjar án þess að dæma það. Hvernig þú getur skynjað það sem þú finnur án þess að gefa því einkunn og hvað þú getur gert þegar það gerist samt..

Þjónusta sem er í boði

Vorið kallar!

Jóga,jógaviska og uplyftandi hugarfar inn í vorið.

Æfingar sem endurnæra huga líkama og sál og byggja upp lífsorku. Vorið kemur með nýtt upphaf, ferska vinda og innblástur til að tileinka okkur heilbrigðan lífsstíl.

Æfingar sem endurnæra huga líkama og sál og byggja upp lífsorku. Jóga, djúp slökun og hugleiðsla.

6 vikna námskeið hefst 8. maí. Miðvikudaga kl 17
.

Einkatímar

Fáðu stuðning við að setja heilsu og góða líðan í forgang.

Heildrænt heilsuviðtal, hómópatía, markþjálfun, bowen, jógaþerapía, Fókusing.

Einkatímar og heildræn ráðgjöf sniðin að þínum þörfum. Hafðu samband og við finnum út úr því hvernig við getum best unnið saman.

Blómstraðu á breytingaskeiði

Netnámskeið sem hjálpar þér að endurnýja lífsorkuna,
sofa - og skilja betur breytingaskeiðið.

Fyrir konur sem sem leita náttúrulegra leiða fyrir aukna orku, hormónajafnvægi og góða heilsu. Og sem vilja gera eitthvað sjálfar til að létta á einkennum breytingaskeiðsins.

Skráðu þig á biðlista fyrir næsta námskeið

Hugleiðsla fyrir friðsælt hjarta

Allir geta lært að hugleiða. Hér er hugleiðsla til að prófa heima. Hún er um leið öndunaræfing. Nærandi stund með þér. Skráðu þig hér til hliðar og þú færð senda upptöku til að fylgja. Skráningunni fylgir aðgangur að fréttabréfinu okkar.