Námskeið Andartaks
Fjölbreytt námskeið í boði bæði á netinu og þar sem þú getur mætt á staðinn.
Námskeið fyrir konur sem vilja kynnast náttúrulegum lausnum fyrir aukna orku, hormónajafnvægi og góða heilsu á breytingaskeiði.
Fyrir konur sem vilja læra að hlusta á líkamann og kynnast dýptinni hið innra.
Val er um að mæta í jógasalinn til okkar í Síðumúla 15, taka þátt í gegn um Zoom eða taka þátt í netnámskeiði þegar og þar sem þér hentar

Námskeið í boði
Hægt er að velja um að koma á staðinn eða hittast í gegn um netið. Einnig í boði netnámskeið þar sem þú getur iðkað þar sem og þegar þér hentar.
Bætt líðan á breytingaskeiði
Náttúrulegar lausnir fyrir nýtt upphaf
Lærðu að skilja einkennin þín og hvað veldur þeim
Litlar breytingar sem geta haft mikil áhrif á orkuna þína
Hannaðu þína áætlun fyrir góða heilsu á breytingaskeiði
Kjörið fyrir konur:
sem eru að glíma við breytingaskeiðseinkenni eins og hitakóf, þyngdaraukningu, kvíða, heilaþoku eða truflaðan svefn og vilja fræðast um þetta mikilvæga tímabil í lífi hverrar konu og kynnast áhrifaríkum náttúrulegum leiðum til að höndla betur einkennin.
Endurheimtu svefninn
á breytingaskeiði
Lærðu að yfirvinna svefnvandamál og endurheimta orku og vellíðan. Svefntruflanir hafa meira að gera með breytingaskeiðið en þú gætir haldið. Lærðu um það af hverju svefninn þinn truflast á breytingaskeiði og hvað þú getur gert til að endurheimta hann.
Um leið og þú ferð að sofa betur verður allt auðveldara. Þú ferð að sjá lausnir sem þú sást ekki áður og lífið verður bjartara og skemmtilegra.
..
KYNNINGARSAMTAL
Velkomið að hafa samband
Umsagnir iðkenda
Einkatímar
Einkatímarnir fara fram að Ránargötu 18, Reykjavík. Öll samtöl geta líka farið fram á netinu..
ÞARFTU AÐ ENDURHEIMTA HEILSUNA?
Heildræn heilsuráðgjöf
Fáðu stuðning við að setja heilsu og góða líðan í forgang. Og við að virkja náttúrulegan lækningamátt líkamans.
Einkatímar og heildræn ráðgjöf sniðin að þínum þörfum.
Nám og lengri
viðburðir
2024
Hugleiðsluhelgi
Djúpt ferðalag inn á við
Febrúar 2024. Staðsetning: Síðumúla 15, 3. hæð
Helgarnámskeið. Leiðbeinandi: Guðrún Arnalds
Næsta vetur
Lærðu að kenna hugleiðslu
Hugleiðsla, öndun og möntrur.
Dýpkaðu þína eigin hugleiðsluiðkun um leið og þú lærir að kenna öðrum að hugleiða
Skráðu þig á lista yfir áhugasama ef þú vilt fá sendar nánari upplýsingar.
Svefntruflanir og hitakóf
Örnámskeið um svefntruflanir og hitakóf fyrir konur á breytingaskeiði.
-
Lærðu um mögulegar orsakir svefntruflana og kveikjur að hitakófi
-
Hitakóf og nætursviti eru ekki það sama. Lærðu að skilja muninn og hvað líkaminn er að segja þér.
-
Um hvernig mataræði og lífsstíll geta haft áhrif á einkennin þín.
-
Fáðu dýpri skilning á hormónabreytingunum og hvað þú getur gert
Ertu með spurningar?
Fylltu út formið hér að neðan til að senda mér fyrirspurn eða panta tíma. Ekki hika við að senda mér línu. Ég geri mitt besta til að svara innan 24 tíma.
Kontakt upplýsingar
Hafðu samband við mig beint í gegn um síma eða tölvupóst: