Finndu þinn takt

4 VIKNA FERÐ MEÐ PERSÓNULEGRI LEIÐSÖGN TIL AÐ STYRKJA RÓ, JAFNVÆGI OG LÍKAMSVITUND.

  • Finnst þér stundum erfitt að halda jafnvægi jafnvel þó þú vitir hvað þú þarft?
  • Ertu að reyna að festa nýjar venjur í sessi, en finnur að það er erfitt að skapa breytingar?
  • Þráirðu meiri ró, orku og tengingu við sjálfa þig í daglegu lífi?

Hér færðu rými til að hægja á, hlusta og finna þinn eigin takt. Smám saman ferðu að finna meiri ró, orku og sjálfstraust í daglegu lífi.

Þetta ferðalag hjálpar þér að styrkja tenginguna við líkama þinn og festa nærandi venjur í sessi á einfaldan og raunhæfan hátt..

Innifalið:

  • 3 einkatímar (30 mín)  + Bónustími í byrjun til að stilla áttavitann og móta markmið

  • Upptaka með öndunaræfingu eða hugleiðslu

  • Vinnubók til að styðja þig á milli tíma

Sjáðu fyrir þér…

  • Að byrja daginn í ró í stað þess að stökkva strax af stað.
  • Að finna að þú getir staldrað við og andað áður en þú ferð í verkefnin.
  • Að geta sagt „nei“ án samviskubits og sett mörk án kvíða.
  • Að mæta erfiðum aðstæðum með meira jafnaðargeði og jafna þig hraðar eftir álag.
  • Að sofa dýpra og vakna úthvíld.
  • Að finna gleðina og forvitnina kvikna aftur — hægt og rólega.

Ég hef meiri samkennd með sjálfri mér og mér finnst eins og ég sé að uppgötva alveg nýja hlið á mér. Ég er sáttari — eins og ég sé að finna heim sem ég hef saknað.  Sigrún

Leið að raunverulegum breytingum

Minna áreiti – meiri næring

Við reynum oft að bæta við; nýjum aðferðum, fleiri verkefnum, meiri aga.
Í stað þess að hugsa þig áfram eða reyna að þrýsta á breytingar, býður þessi vinna þér að staldra við og hlusta.

Líkaminn er þinn viskubrunnur

Líkaminn geymir mynstrin, tilfinningarnar og sögurnar þínar. Hann er ekki vandamál sem þarf að leysa, heldur lykill að dýpri skilningi.

Eitt andartak í hlustun

Þegar þú byrjar að hlusta finnur þú að friðurinn og jafnvægið eru þegar til staðar innra með þér. Þú ferð að treysta þér aftur, finna hvað þú raunverulega þarft og lifa lífi sem er nærandi í stað þess að keyra þig áfram.

Það sem þú lærir með þjálfun í líkamsvitund hjálpar þér að tengja þessa reynslu við daglegt líf þitt.

Einkatímar

Viltu halda áfram að dýpka tengslin við líkamann eftir námskeiðið Bætt líðan á breytingaskeiði og byrja að marka þína leið áfram með persónlulegri leiðsögn?

Í þessum einkatímum færðu rými til að hlusta á visku líkamans og finna þinn eigin takt í daglegu lífi

Líkaminn sem leiðarljós

4 vikur í aukna líkamsvitund og jafnvægi í daglegu lífi

Þú velur hvað þú vilt leggja áherslu á, hvort sem það er að bæta svefn, jafna orkuna, róa taugakerfið, setja mörk í daglegu lífi, finna mataræði sem nærir þig eða að finna hvað hindrar þig í að blómstra.

Ef þú veist ekki hvað þú þarft þá finnum við út úr því saman.

Innifalið:
Þrír einkatímar (30 mín) + bónustími í byrjun til að stilla áttavitann og móta markmið
Upptaka með öndunaræfingu eða hugleiðslu og vinnubók til að styðja þig á milli tíma

Verð: 34.900 kr. (sérstakt tilboð fyrir þátttakendur námskeiðsins. Fullt verð: 49.000)

Þú þarft ekki að gera meira – heldur að hlusta dýpra.

Hvað færð þú út úr þjálfun í líkamsvitund? 

  • Betri skilning á taugakerfinu og áhrifum þess á daglegt líf

  • Einföld verkfæri til að róa líkamann, auka einbeitingu og jafnvægi

  • Meira sjálfstraust og skýr mörk sem styðja þig í að hlusta á eigin þarfir

  • Jafnvægi í samskiptum — og færni til að bregðast öðruvísi við erfiðum aðstæðum

  • Dýpri tenging við líkama þinn og tilfinningar — þannig að þú getir staðið með sjálfri þér í stað þess að fara gegn þér

þetta eru ekki bara mín orð. Svona lýsa aðrar konur upplifun sinni…

 

Reynslusögur

Ég hef haft tilhneigingu til að taka ábyrgð á öllu og öllum á heimilinu og var mjög iðin við að rífa mig niður án þess kannski að gera mér grein fyrir því. Ég hef lært að mæta innri gagnrýni með húmor í stað þess að stjórnast af henni. Nú er ég rólegri gagnvart fjölskyldunni, með meira sjálfstraust og það er styttra í léttleikann og gleðina.”

SIGRÚN 

“Ég get verið í kringum erfiðan einstakling í fjölskyldunni án þess að missa jafnvægið eða bregðast harkalega við eins og ég var vön að gera. Hann hefur ekki breyst, en viðbrögðin mín hafa breyst.“

ELSA

Ég átti oft erfitt með að vakna á morgnana því hugurinn þrengdi að mér með endalausum hugsunum og áhyggjum. Mig  langar til að njóta þess meira að mála og skapa en ég vantreysti mér mjög oft í sköpun. Í gegnum þessa vinnu hef ég uppgötvað að líkami minn býr yfir endalausri visku. Ég á mun auðveldara með að höndla streituaðstæður. Ég veit í líkamanum að ég get höndlað þær og ég  bý yfir meira trausti á minn eigin sköpunarkraft.

LOUISE

Það sem þú leitar að er ekki utanaðkomandi lausn, heldur viska sem býr nú þegar í líkamanum.

Með því að hlusta á líkamann ferðu smám saman að finna ró, jafnvægi og sjálfstraust sem styður þig í daglegu lífi.

Ef þú finnur að þetta talar til þín, þá er næsta skref einfalt. Sendu mér línu og við finnum út í sameiningu hvaða leið hentar þér best.

 

Ferðalagið hefst með einu skrefi

Líkaminn er vitur vera

Lífið sem við lifum hefur fært okkur fjær náttúrunni og hvert öðru. Þar af leiðandi höfum við fjarlægst líkamann og þá visku sem hann býr yfir.
  • Við lærum að líta á líkamann sem eitthvað sem þarf að laga

Þessi skortur á tengslum við okkur sjálf og aðra hefur leitt af sér aukinn kvíða, þunglyndi, einmanaleika og streitu.

Við þurfum að finna aftur okkar náttúrulega takt og læra að treysta líkamanum að nýju.