Það var ljúft og frískandi að koma út í birtuna í morgun.
Og ég naut þess að finna vorið sem er loksins að vakna allt í kringum okkur.
Hundurinn minn hafði sérstakan áhuga á tveimur gæsum sem spígsporuðu um grasið í garði eins nágranna míns.
Svo tóku þær flugið með þungu vængjataki.
En andartaki seinna heyrði ég dynk.
Önnur gæsin flaug áfram
en hin hafði lent á húsþaki og oltið svo niður í garðinn. .
Ég kíkti yfir limgerðið og sá hana standa þarna, dálítið hissa.
Hin gæsin kom strax aðvífandi til að spyrjast fyrir um hvað hefði gerst.
Við horfðumst í augu, ég og gæsin í garðinum,
og veltum þessu báðar fyrir okkur.
En svo hélt ég áfram göngunni.
Ég vona að hún hafi náð sér aftur á flug og komist út í vorið.
Vorið er dálítið svona.
Við finnum löngun til að takast á loft og finna frelsið undir vængjunum
Að fylgja þessari nýju og fersku orku sem er að vakna.
En á sama tíma er veturinn enn aðeins að draga okkur niður.
Við árstíðaskipti fer líkaminn í gegnum breytingar sem við tökum ekki alltaf meðvitað eftir.
Líkaminn er í raun að skipta um takt.
Undanfarna mánuði, þar sem myrkur og kuldi voru ríkjandi, hefur allt verið hægara.
Plöntur og dýr hafa legið í dvala og beðið eftir rétta tímanum til að vakna.
Við manneskjurnar erum eins
þó að líf innan fjögurra veggja geri okkur vissulega dálítið rugluð í rýminu og fjarlæg náttúrunni
En líkaminn finnur. Hann veit að vorið er að nálgast.
Og á meðan við erum einhversstaðar á milli veturs og vors
getur okkur liðið eins og við séum bæði og og hvorki né.
Kannski finnur þú fyrir þreytu og þyngslum.
Eða tregðu í líkamanum.
Eins og þú sért dálítið ryðguð eftir kulda og raka vetrarins
Kannski finnurðu fyrir pirringi eða óþolinmæði
eða að litlir hlutir fari meira í taugarnar á þér en venjulega.
Sumir finna fyrir höfuðverk, kvefi eða aukinni viðkvæmni fyrir streitu.
Þessi umbreyting úr vetri í vor er oft ekki alveg átakalaus.
Og líkaminn þarf stundum á smá alúð og umhyggju að halda til að við komumst mjúklega í gegnum hana.
Þegar við styðjum líkamann á þessum tíma
þá svarar hann með þakklæti
Orkan fer að flæða frjálsar.
Við finnum meiri léttleika.
Og það verður auðveldara að hlusta eftir því sem er að vakna innra með okkur.
Það þarf ekki að vera flókið.
En það skiptir máli að hlusta
og mæta líkamanum þar sem hann er.
Ef þú finnur að þetta á við þig
og langar að styðja líkamann betur á þessum tíma
þá er ég með opna vorvinnustofu þar sem við förum dýpra í þetta:
Úr vetrardvala í vorgleði
29. apríl kl. 17:15
Þar deili ég einföldum leiðum
til að hlúa að líkamanum og hjálpa honum að finna sinn takt á ný.
Þú getur skoðað það nánar hér: Úr vetrardvala í vorgleði





