Náttúran umbreytist við hver árstíðaskipti
Hvalir ferðast langar leiðir, fuglar fljúga heimshorna á milli til að laga sig að umskiptum árstíðanna.
Laufin falla af trjánum.
Hver einasta lífvera gerir breytingar í lífsháttum sínum, dvalarstað og rútínu.
Allar lífverur — nema maðurinn.
Við förum bara í fleiri föt eða fækkum þeim
og hækkum eða lækkum hitann í ofnunum.
Verslanir bjóða upp á sama matinn allt árið um kring
og hvetja okkur þannig til að borða eins, sama hver árstíðin er.
Þetta væri óhugsandi í náttúrunni.
Taktur náttúrunnar
Heildræn nálgun kennir okkur að lifa meira í takti við árstíðirnar
og velja fæðu sem vex þegar við þurfum mest á henni að halda.
Á vorin koma grænir sprotar upp úr moldinni.
Þeir eru oft dálítið beiskir á bragðið
en það er einmitt það sem líkaminn þarf meira af á þessum tíma.
Vetrinum fylgir að við sækjum meira í þungan mat og sætmeti.
Og veturinn á það til að hanga í okkur fram eftir vori ef við gerum ekkert í því. Og þessi þyngsli geta farið að byggjast upp í okkur.
Náttúran býður okkur að aðlagast.
Að létta smám saman á.
Að hreyfa okkur meira.
Að styðja líkamann í því sem hann er nú þegar að reyna að gera.
En það er ekki alltaf auðvelt.
Breytingar á miðjum aldri
Á miðjum aldri breytast þarfir okkar
Það kallar á að við hlustum aðeins betur
og lærum að skilja hvað líkaminn þarf.
Jógaiðkun getur verið dýrmætur stuðningur á þessum tíma.
Hún hjálpar okkur að hreyfa orkuna, losa um spennu
og koma jafnvægi á taugakerfið.
Að finna sinn takt á ný
Ef þú finnur að það væri gott að fá smá leiðsögn
þá verð ég með vinnustofu miðvikudaginn 29. apríl
þar sem við skoðum þetta nánar
og finnum þetta líka í líkamanum með einföldum æfingum.
Úr vetrardvala í vorgleði
🗓 29. apríl kl. 17:15
Þar skoðum við hvernig þú getur stutt líkamann í þessum umbreytingarfasa
og prófum á eigin skinni jógaæfingar, öndun og aðferðir
sem hjálpa til við að losa um þunga og koma orkuflæðinu af stað.





