Möndluhristingur með kanil
Þessi silkimjúki hristingur er styrkjandi og nærandi fyrir haustmánuðina. Á haustin notar líkaminn alla orkuna til að byggja sig upp fyrir veturinn. Haustið er þurrkandi tími, með sína vindasömu og breytilegu veðráttu. Þetta er tími sem við þurfum að huga vel að því að fá nægan vökva. Þegar okkur vantar vökva verðum við þreytt og orkulaus. Hugurinn verður ofvirkur og stekkur úr einu í annað. Svefnleysi getur gert vart við sig á þessum árstíma og aukið álagið. Á haustin er mikilvægt að finna sér takt og rútínu í deginum og huga vel að því að næra og vökva líkamann og þá um leið hugann. Þessi blanda af nærandi döðlum og jarðtengjandi möndlumjólk getur hjálpað þér að finna jafnvægi fyrir líkamann og kyrra hugann og njóta sætleika lífsins.
Innihaldsefni:
1 bolli möndlumjólk
2 klípur af kanil
2 heilar döðlur (þurrkaðar og best ef þær hafa legið í bleyti í 4 tíma en ekki nauðsynlegt)
Lítill biti (ca. 0,5 sm) af engifer
Skvetta af vanilludropum eða smá klípa af vanilludufti (valkvæmt)
1 tsk ghee eða möndlusmjör (valkvæmt)
Leiðbeiningar
- Taktu steininn úr döðlunum (ef það á við)
- Hitaðu möndlumjólkina eða hafðu hana við stofuhita eftir því hvað þér finnst best. Heit mjólk er róandi og nærandi drykkur fyrir svefninn
- Settu allt í blandara
- Ef þú vilt gera drykkinn enn meira endurnærandi, geturðu bætt við 1 tsk af ghee eða möndlusmjöri og sett kúamjólk eða kókosmjólk í stað möndlumjólkur.
Heildræn heilsuráðgjöf
Ég býð upp á heildræna heilsuráðgjöf og get boðið þér að koma og fá stuðning við að greina líkamsgerð þína og finna hvað þú þarft til að finna betra jafnvægi á huga og líkama. Velkomið að senda mér tölvupóst ef þú vilt fá nánari upplýsingar.