Sumarsamhljómur

Nokkrar hugleiðingar um sumarið og gjafir sumarsins

Sumarsamhljómur
… er þegar ég finn taktinn minn renna saman við takt náttúrunnar. Við verðum eitt. Náttúran hjálpar mér að finna – að skynja – líka það sem mér finnst vanta. Það sem ég sakna.
Andstæðan við samhljóm er óreiða, ósamræmi, streita og álag. Eins og mörg hljóðfæri sem spila ekki í sama takti.

Sumarið er tíminn þar sem við finnum aftur taktinn og hljómum saman. Samvera, samruni. Við frumefnin. Samhljómur í frumunum.

Sumarsamhljómur er…
… suð í flugum, þytur í hrossagauk, birtan frá gulum fíflum og sóleyjum sem kallast á við blágresið.
Blaktandi tjald í morgunsól, þyturinn í trjánum.
Börn sem vilja pissa í grasinu en neita að kúka nema heima hjá sér.
Ilmurinn af grilli og sundsprettur í rigningu.
Regnið sem bylur á þakinu og sólin sem er búin að brenna húsið og pallinn svo nú þarf að mála.
Jóga í lautinni og sumarhugleiðsla með hreinsandi birtu og kyrra hryggsúlu.
Forvitnir fuglar sem fljúga upp um leið og augu mín opnast.

Fossar og flúðir. Börn sem veiða fiðrildi í háfana sína og skvaldra öll í einu.
Krumminn sem óvænt birtist og flýgur fram hjá með þungu vængjataki.
Tími til að lesa bækur og ský.
Þurrkað blóðberg og maríustakkur í tebolla.
Jurtir í olíu sem gefa frá sér græðandi safa í smyrsl fyrir veturinn.
Þykkir sokkar og fjallgönguskór.
Fjallgöngur sem taka í lærin og opna skilningarvitin.
Gola í fangið og sól í hnakkann.
Vindur sem feykir burtu streitu og rigning sem skolar burtu áhyggjum.

Tími til að syrgja.
Pabbi að tala til mín í gegnum trén sem hann gróðursetti.
Muna hvað hann langaði að finna aftur lífskraftinn sem var að dvína.
Muna að lifa til fulls.

Sumarsamhljómur er að drekka í sig birtuna svo við eigum birgðir fyrir veturinn.
Að syngja með birtunni og muna myrkrið, svo ég sé undirbúin.
Djúpur andardráttur og ís. Grænt salat og ferskar gulrætur.
Að hlusta eftir því sem ég þarf – sem er stundum ekki það sama og mig langar.

Sumarsamhljómur er lífið í öllum sínum litum.

Hvernig hljómar þitt sumar?

Hvað þarftu til að upplifa samhljóm – með náttúrunni, líkamanum. Með lífinu?

Ef þú hefur áhuga á fleiri hugleiðingum um sumarið og um tengsl líkama og lífsflæðis, þá gæti þessi pistill líka átt erindi við þig: Heilsan og fríið

Flokkar

Nýjast

Að finna bragðið af lífinu

Að finna bragðið af lífinu

Í starfi mínu og í daglegu lífi hef ég lært að meta hversu dýrmætt það er að eiga stundir þar sem ég tengist líkamanum beint. Að finna það sem er hér og nú. Ekki það sem ég hugsa um það sem ég upplifi, heldur það sem ég skynja. Þetta er eitt það einfaldasta – og samt...

Þegar innri spenna verður hluti af bakgrunninum

Þegar innri spenna verður hluti af bakgrunninum

Ég átti samtal við konu nýlega sem sagði mér að hún væri eiginlega ónæm fyrir spennu. Hún elskar að horfa á spennumyndir og lesa glæpasögur. Hún sagðist jafnvel þrífast á spennu. Svo fórum við að tala um svefninn. Hún sagði mér að það tæki hana oft langan tíma að...

Það sem mig langar og það sem ég þarf

Það sem mig langar og það sem ég þarf

Þegar ég var tvítug var ég að vinna eitt sumar í skógrækt, norður í landi. Ég kom inn í hóp af konum sem voru búnar að vinna saman ár eftir ár og nutu þess að vinna í nálægð við náttúruna og að vera saman. Við hlógum mikið og fyrir mig var þetta mjög skemmtilegur...

Um mig

Ég heiti Guðrún. Jógakennari, rithöfundur, markþjálfi og hómópati.

Ég elska að skrifa. Skrif hjálpa mér að heyra hvísl lífsins í gegn um skarkala heimsins.

Ég styð fólk í að finna jafnvægi í óstöðugum heimi. Að gefa heilsunni rými og hlusta eftir því sem hjartað býður, fram hjá sjálfsgagnrýni og kröfum umhverfisins. Að horfa út, ekki bara um augun í höfðinu heldur líka augu líkamans. Og að skynja töfrana sem búa í Andartakinu.