Veturinn er tilvalinn tími til að fara inn á við og hlaða batteríin. Samkvæmt Ayurveda er þetta tími til að byggja upp kjarnann okkar, eðlislæga hreysti og æskuljóma. Í Ayurveda er þetta kallað Ojas.
Þessi nærandi, létta og samt fyllandi súpa er rík af vítamínum og steinefnum og engiferið gefur henni vermandi eiginleika. Túrmerik er oft sagt vera undrakrydd en það þarf að borða það rétt til að það geri sitt gagn. Samkvæmt ayurveda er gott að neyta þess með fitu (hér erum við með kókosmjólk og ghee).
Fyrir 2-4
Innihaldsefni:
2 msk kókosolía eða ghee
1 rifið engifer (uþb einn þumall að stærð)
1 tsk túrmerik
1 hvítlauksrif, niðurskorið
150g rauðar linsubaunir (skola fyrst tvisvar)
400ml dós af kókosmjólk
800ml grænmetiskraftur
2 stórar lúkur af spínati
2 litlir púrrulaukar (eða 1 stór)
Safinn úr 1-2 límónum
Salt og ferskmalaður svartur pipar eftir smekk
Aðferð
Hitaðu kókosolíuna eða ghee í stórum potti á meðalhita. Léttsteiktu engifer, túrmerik og hvítlauk í um 30 sekúndur. Bættu linsunum út í, steiktu þær í um 1 mínútu og hrærðu vel í á meðan svo þær festist ekki við botninn. Þetta hjálpar til við að koma í veg fyrir loftmyndun af linsunum.
Bættu kókosmjólkinni út í og grænmetiskraftinum og sjóddu með lokinu á í um 15-20 mínútur þar til linsurnar verða mjúkar.
Bættu spínatinu út í og niðurskornum blaðlauknum. Sjóddu án loks í tíu mínútur í viðbót.
Settu límónuna út í ásamt salti og pipar. (Fyrst 1 límónu og smakkaðu til. Ef þér finnst þörf á annarri límónu þá geturðu bætt henni við).
Berðu fram heitt með góðu brauði.