Af hverju morgnarnir skipta máli á breytingaskeiði

Það er margt sem breytist í líkamanum á breytingaskeiði.

Svefninn verður viðkvæmari.
Orkan sveiflukenndari.
Innri hraði eykst stundum án þess að við skiljum af hverju.

Margar konur upplifa að það sem virkaði áður virkar ekki lengur á sama hátt.

En eitt af því sem getur haft meiri áhrif en við höldum — er hvernig við byrjum daginn.

Af hverju morgnarnir skipta máli

Morguninn setur tóninn fyrir daginn. Ef við gefum okkur þó ekki nema smá stund með okkur sjálfum á morgnana þá getur hún fylgt okkur út daginn.

Morguninn er augnablikið þar sem við getum valið.

Við getum farið beint inn í hraðann.
Eða við getum skapað rými.

Ekki endilega eitthvað langt eða mikið.
Jafnvel bara nokkrar mínútur þar sem við eigum rólega og nærandi stund áður en dagurinn tekur yfir.

Þetta gæti þróast yfir í að vera stutt morguniðkun. Tími til að…

– anda
– hreyfa líkamann
– opna orkuflæðið
– losa um spennu
– róa taugakerfið áður en dagurinn byrjar

Líkaminn upplifir streitu eins og hann sé í hættu. Þegar við byrjum daginn svona sendum við honum skilaboð um að við séum örugg.
Og öryggi er grunnurinn að því að finna jafnvægi.

Smám saman gætirðu farið að hlakka til þessara stunda með sjálfri þér. Að eiga rými sem er bara þitt.
Og það að gefa þér rými getur aukið sjálfstraust og tilfinningu fyrir dýpt innra með þér. Kyrrðin færist nær.

Þetta getur haft áhrif á svefninn, hugann og á þessa tilfinningu fyrir innri hraða.
Þetta snýst ekki um viljastyrk — heldur mildi gagnvart sjálfri þér.

Morgunstund sem styður líkamann

Sjálf hef ég tileinkað mér þá venju að byrja flesta morgna með jóga og hugleiðslu.
Á námskeiðunum mínum hef ég stundum boðið upp á sameiginlega morguniðkun til að gefa tilfinningu fyrir því hvað það getur haft djúp áhrif.

Hálftími í jóga á morgnana.
Tenging við líkamann áður en dagurinn byrjar.

Nú í mars er ég að bjóða upp á 11 daga morguniðkun sem ég kalla Nærandi morguntakt — mjúkan og styðjandi ramma til að prófa þetta á eigin skinni.

Ef þú vilt lesa nánar geturðu skoðað hér: Nærandi morguntaktur

Flokkar

Nýjast

Breytingaskeiðið: Þröskuldur inn í nýjan kraft

Breytingaskeiðið: Þröskuldur inn í nýjan kraft

Það er svo auðvelt að hugsa um breytingaskeiðið sem tíma sem við þurfum að þrauka til að komast út hinum megin. Tíma þar sem líkaminn verður óútreiknanlegur: svefninn breytist, hitakóf koma og fara, hugurinn verður dreifðari og meira flöktandi og orkan sveiflukennd....

Taktu myrkrinu fagnandi

Taktu myrkrinu fagnandi

Nýtt ár gefur tilfinningu fyrir nýju upphafi. Hreinum snjó sem við getum þrammað út í og markað ný spor. Við setjum okkur markmið um að verða betri en á síðasta ári. Að skrifa nýja sögu á þetta auða blað sem nýtt ár færir okkur. Nýársheit eiga það stundum til að...

Af hverju er ég orkulítil þó ég sé að gera mitt besta?

Af hverju er ég orkulítil þó ég sé að gera mitt besta?

Þetta er algeng spurning... ...hjá konum sem eru að fara í gegnum breytingatímabil. Ekki síst þeim sem eru á - eða hafa lokið breytingaskeiði. Þær lýsa líkamlegum og tilfinningalegum einkennum sem oft virðast sundurlaus og erfitt að ná utan um. Þetta getur verið mjög...

Um mig

Ég heiti Guðrún. Jógakennari, rithöfundur, markþjálfi og hómópati.

Ég elska að skrifa. Skrif hjálpa mér að heyra hvísl lífsins í gegn um skarkala heimsins.

Ég styð fólk í að finna jafnvægi í óstöðugum heimi. Að gefa heilsunni rými og hlusta eftir því sem hjartað býður, fram hjá sjálfsgagnrýni og kröfum umhverfisins. Að horfa út, ekki bara um augun í höfðinu heldur líka augu líkamans. Og að skynja töfrana sem búa í Andartakinu.