Finndu þinn takt

4 VIKNA FERÐ: PERSÓNULEG LEIÐSÖGN TIL AÐ STYRKJA RÓ, JAFNVÆGI OG LÍKAMSVITUND.

Ímyndaðu þér að byrja daginn í ró í stað þess að stökkva strax af stað.
Að geta staldrað við, andað og fundið þig betur í eigin líkama.
Að sofa dýpra og vakna með meiri orku. 

Þessi 4 vikna leiðsögn styður þig þar sem þú ert stödd, hjálpar þér að hægja á og hlusta á líkamann og festa nærandi venjur í sessi á einfaldan hátt og á þínum forsendum.

Aðferðin sem ég kenni styður þig í að vera til staðar fyrir sjálfa þig, líka þegar lífið verður erfitt og álagið mikið

Ég finn að hugurinn er skýrari — ég get loksins einbeitt mér að einu verkefni í einu.“ — Louise (þátttakandi)

Innifalið:

  • 4 einkatímar (30  mín.)
  • Myndband með öndunaræfingu og eða hugleiðslu
  • Vinnubók til stuðnings

Þú hefur líklega prófað margt…

…til að finna meiri ró og jafnvægi. Slökun, hugleiðsluöpp, bætiefni, gönguferðir, að taka þér frí…

Það gaf kannski tímabundna hvíld — en svo finnur þú þig aftur á sama stað:

  • Þreytta
  • Svefnlausa
  • Upplifir að þú sért utan við sjálfa þig
  • Að finnast þú ekki vera á réttum stað í lífinu.

Þú veist í raun hvað þú þarft að gera – en samt er eins og það nái ekki alla leið inn í daglegt líf.

Þú ert ekki ein

Við höfum flest okkar lært að treysta huganum meira en líkamanum. En þar liggur lykillinn að ró, jafnvægi og trausti.

Sjáðu fyrir þér

  • Að tengjast líkamanum á ný og finna hugann verða skýrari, með meira rými fyrir ró og innsæi.
  • Að mæta erfiðum aðstæðum með meira jafnaðargeði og jafna þig hraðar eftir álag.
  • Að geta sagt „nei“ án samviskubits og sett mörk án kvíða.
  • Að geta hvílt í því sem þú ert að gera án samviskubits.
  • Að finna gleðina og forvitnina kvikna aftur — hægt og rólega.

„Ég hef meiri samkennd með sjálfri mér og mér finnst eins og ég sé að uppgötva alveg nýja hlið á mér. Ég er sáttari — eins og ég sé að finna heim sem ég hef saknað.“  Sigrún (þátttakandi)

Finndu þinn takt

  • 4 einkatímar (30 mín. hver tími)
  • Myndband með öndunaræfingu og eða hugleiðslu
  • Vinnubók til stuðnings

Verð

Sérstakt tilboð fyrir þátttakendur á námskeiðinu „Bætt líðan á breytingaskeiði“: 34.900 kr. (Fullt verð 49.000 kr.)

Leið að raunverulegum breytingum

MINNA ÁREITI, MEIRI NÆRING

Þú lærir að halda utan um sjálfa þig í gegnum álag og erfiðleika og auka tilfinninguna fyrir því að vera stærri en streitan og álagið. Með tímanum verður auðveldara að mæta erfiðum tilfinningum eins og kvíða, sorg og reiði, að höndla innri gagnrýni og setja skýr mörk. Smám saman ferðu að finna aukinn styrk og öðlast betri aðgang að gleðinni innra með þér.

LÍKAMINN ER ÞINN VISKUBRUNNUR

Líkaminn geymir mynstrin, tilfinningarnar og sögurnar þínar. Hann er ekki vandamál sem þarf að leysa, heldur lykill að dýpri skilningi.

EITT ANDARTAK Í HLUSTUN

Þegar þú byrjar að hlusta finnur þú að friðurinn og jafnvægið eru þegar til staðar innra með þér. Þú ferð að treysta þér aftur, finna hvað þú raunverulega þarft og lifa lífi sem er nærandi í stað þess að keyra þig áfram.

Það sem þú lærir með þjálfun í líkamsvitund hjálpar þér að tengja þessa reynslu við daglegt líf þitt

 

Hvað færð þú út úr þjálfun í líkamsvitund? 

  • Betri skilning á taugakerfinu og áhrifum þess á daglegt líf

  • Einföld verkfæri til að róa líkamann, auka einbeitingu og jafnvægi

  • Meira sjálfstraust og skýr mörk sem styðja þig í að hlusta á eigin þarfir

  • Jafnvægi í samskiptum — og færni til að bregðast öðruvísi við erfiðum aðstæðum

  • Dýpri tengingu við líkama þinn og tilfinningar — þannig að þú getir staðið með sjálfri þér í stað þess að yfirgefa sjálfa þig

Ró, jafnvægi og traust byrja í líkamanum, ekki í huganum. 

þetta eru ekki bara mín orð. Svona lýsa aðrar konur upplifun sinni…

 

Reynslusögur

 

„Ég hef haft tilhneigingu til að taka ábyrgð á öllu og öllum á heimilinu og var mjög iðin við að rífa mig niður án þess kannski að gera mér grein fyrir því. Ég hef lært að mæta innri gagnrýni með húmor í stað þess að stjórnast af henni. Nú er ég rólegri gagnvart fjölskyldunni, með meira sjálfstraust og það er styttra í léttleikann og gleðina.”

SIGRÚN

„Ég get verið í kringum erfiðan einstakling í fjölskyldunni án þess að missa jafnvægið eða bregðast harkalega við eins og ég var vön að gera. Hann hefur ekki breyst, en viðbrögðin mín hafa breyst.“

ELSA

„Ég átti oft erfitt með að vakna á morgnana því hugurinn þrengdi að mér með endalausum hugsunum og áhyggjum. Mig  langar til að njóta þess meira að mála og skapa en ég vantreysti mér mjög oft í sköpun. Í gegnum þessa vinnu hef ég uppgötvað að líkami minn býr yfir endalausri visku. Ég á mun auðveldara með að höndla streituaðstæður. Ég veit í líkamanum að ég get höndlað þær og ég  bý yfir meira trausti á minn eigin sköpunarkraft.

LOUISE

Ferðalagið hefst með einu skrefi

Það sem þú leitar að er ekki utanaðkomandi lausn, heldur viska sem býr nú þegar í líkamanum.

Með því að hlusta á líkamann ferðu smám saman að finna ró, jafnvægi og sjálfstraust sem styður þig í daglegu lífi. 

Líkaminn er vitur vera

Lífið sem við lifum hefur fært okkur fjær náttúrunni og hvert öðru. Þar af leiðandi höfum við fjarlægst líkamann og þá visku sem hann býr yfir.
  • Við lærum að líta á líkamann sem eitthvað sem þarf að laga

Þessi skortur á tengslum við okkur sjálf og aðra hefur leitt af sér aukinn kvíða, þunglyndi, einmanaleika og streitu.

Við þurfum að finna aftur okkar náttúrulega takt og læra að treysta líkamanum að nýju.