Litrík seigla

Þegar haustar er nóg að gera við að koma öllu í skorður og finna taktinn upp á nýtt. Ég þarf að hafa mig alla við að að setja tímanum mörk og ætla mér ekki of mikið. Að ýta til hliðar og forgangsraða. Ég tala við verkefnin og segi þeim að þau þurfi að bíða aðeins lengur og minni sjálfa mig á að ég er eitthvað meira og stærra en hugsanirnar mínar og verkefnin sem bíða. Ef ofvirkur hugurinn nær að stilla mér upp við vegg að nóttu til þá getur verið erfitt að halda honum í skefjum. En líka þá á ég mínar leiðir. Öndunaræfingar eru til dæmis að mínu mati ómissandi ferðafélagi í lífinu. Regluleg jógaiðkun er mín besta bólusetning gegn álagi.

Haustforði af friðsæld

Sumarið er fyrir mér tími til að safna fegurð og fjöllum í sinnið. Eins og íkornarnir safna hnetum og fræjum í sitt forðabúr og björninn borðar vel yfir sumarið svo hann geti lagst í hýði yfir veturinn. Ég bý mér til forða af friðsæld og náttúru, af sól og hita (ef heppnin er með mér), af ljúfum og nærandi minningum. Af þeim skilningi sem ég öðlaðist við það að stíga út úr borgarhraðanum og inn í takt náttúrunnar. Skilningi á lífi mínu, á fólki í kring um mig, á því hvað skiptir mig máli, hvernig ég vil forgangsraða, hvað það er sem ég þarf mest á að halda í lífinu og hverju ég vil sleppa. Þessi brunnur er eins konar áttaviti sem beinir mér í rétta átt þegar vetrarþokan verður sem þykkust.

Litrík seigla

Eitt af því sem ég hef hugleitt í sumar er hvernig ég tekst á við streitu. Eins og allir aðrir verð ég að horfast í augu við þá staðreynd að hraði og streita í heiminum eru frekar að aukast heldur en hitt. Ef ég ætla að lifa innihaldsríku lífi þá þarf ég að vera stærri en álagið. Stærri og bjartari, vitrari og seigari, með sköpunargleðina á lofti. Litrík seigla. Seigla er fyrir mér ákveðið viðhorf. Að taka lífinu án þess að dæma, án þess að kvarta. Seigla er kyrrð. Kyrr hugur sem staldrar við þegar þarf og horfir aftur á málið. Sem forgangsraðar vel og er ekki fastur í of djúpu fari. Það að festast í djúpu fari er að vera með venjur sem eru ómeðvitaðar og þjóna mér ekki. Stöðugur hugur sem tekur ekki hlutina of persónulega. Seigla er að vera stór. Hún kallar eftir sjálfsmildi. Að ég sé vinsamleg við mig. Að ég búist við að ég hafi það sem til þarf. Litrík seigla er full af gleði og sköpunarkrafti. Ég setti mér það markmið inn í veturinn að koma mér upp litríkri seiglu.

Spurningar til þín

Hverju hefur þú safnað í þinn sarp í sumar? Hvernig lítur seigla út í þínu lífi – ef hún væri litrík og full af gleði?

Traustar grunnstoðir

Það sem heldur mér tengdri við sjálfa mig – sérstaklega á streitumiklum dögum – eru einföld og endurtekin verkfæri: öndun, mjúk hreyfing, kyrrð og hlustun inn á við. Þau hafa orðið að traustum grunnstoðum í mínu lífi og í lífi margra þeirra kvenna sem til mín hafa leitað.

Ef þú misstir af síðasta pistli – eða vilt rifja hann upp – þá fjallaði hann um að tengjast líkamanum beint og finna bragðið af lífinu. Smelltu hér til að lesa: Að finna bragðið af lífinu

Flokkar

Nýjast

Að finna bragðið af lífinu

Að finna bragðið af lífinu

Í starfi mínu og í daglegu lífi hef ég lært að meta hversu dýrmætt það er að eiga stundir þar sem ég tengist líkamanum beint. Að finna það sem er hér og nú. Ekki það sem ég hugsa um það sem ég upplifi, heldur það sem ég skynja. Þetta er eitt það einfaldasta – og samt...

Nærandi grillmáltíð

Nærandi grillmáltíð

Nú er Verslunarmannahelgin framundan og þrátt fyrir rigningaspá finnst mörgum gott að kveikja á grillinu og njóta máltíðar saman. Grill þarf þó ekki endilega að þýða hamborgarar og pylsur – það getur líka verið skemmtileg leið til að elda grænmeti. Best er þegar við...

Villt viska og djúp hvíld

Villt viska og djúp hvíld

Hundurinn minn, hún Dimma, leikur á alls oddi hérna í sveitinni. Hún nýtur þess að hlaupa á eftir fuglum, vaða út í sjóinn og þefa í allar áttir. Ég skil hana svo vel – því mér líður aldrei betur en þegar ég er úti í villtri náttúru. Ég hef verið að hugleiða það...

Um mig

Ég heiti Guðrún. Jógakennari, rithöfundur, markþjálfi og hómópati.

Ég elska að skrifa. Skrif hjálpa mér að heyra hvísl lífsins í gegn um skarkala heimsins.

Ég styð fólk í að finna jafnvægi í óstöðugum heimi. Að gefa heilsunni rými og hlusta eftir því sem hjartað býður, fram hjá sjálfsgagnrýni og kröfum umhverfisins. Að horfa út, ekki bara um augun í höfðinu heldur líka augu líkamans. Og að skynja töfrana sem búa í Andartakinu.