Veturinn er sá timi þegar jörðin og lífverur hennar draga sig í hlé og fara inn á við. Við manneskjurnar, með okkar hlýju og björtu hús og upptekna líf eigum það til að lifa í öðrum takti en náttúran í kring um okkur. En líkaminn veit hvaða árstíð er. Á sama hátt og dýr og plöntur leggjast í dvala á þessum árstíma getum við notað þennan tíma til að fara inn á við og sækja okkur endurnýjun. Til dæmis með því að hlúa að því að skapa hlýtt andrúmsloft á heimilinu og búa okkur til nærandi venjur í gegnum þennan dimmasta og kaldasta tíma ársins. Mér finnst ómissandi, ekki síst á veturna að byrja daginn á að hugleiða.
Ayurveda kennir okkur mikilvægi þess að tendra meltingareldinn og finna takt í deginum. Við getum hlúð að meltingareldinum með því að borða nærandi fæðu og hlusta á það sem líkaminn þarf. Til dæmis er gott í vetrarkuldanum að borða heitan og eldaðan mat, drekka jurtate yfir daginn og nota krydd sem styðja við meltinguna.
Hér kemur ein tillaga að vetrarmáltíð eða meðlæti með stærri máltíð.
Smörhnetugrasker heitir Kushmanda á Sanskrít, sem þýðir bæði heilsa, velmegun og hjarta, og vísar til nærandi og hjartavermandi eiginleika þess. Ayurvedískar uppskriftir eru yfirleitt bragðbættar með heilandi kryddjurtum sem bæta meltinguna. Þessi uppskrift er engin undantekning.
Steikt smjörhnetugrasker fyrir tvo
Innihaldsefni:
- 1 tsk ghee
- 1/4 tsp cumin fræ
- 1/4 tsp fennel fræ
- 1/4 tsp ajwain fræ
- 1/4 tsp fenugreek fræ
- 8-10 karrýlauf
- 1,5 sm af engiferrót
- 1 laukur
- 2 bollar smjörhnetugrasker
- 1/4 tsp túrmerik duft
- Himalayasalt
- Ferskt kóríander (valkvæmt)
- Granateplafræ (valkvæmt)
Leiðbeiningar:
- Hitaðu 1 tsk ghee í stórri pönnu yfir meðalhita. Bættu við ¼ tsk af þessum meltingarkryddum: cumin, fennel, ajwain og fenugreek. Brúnaðu fræin þar til þú finnur ilminn úr fræjunum. Venjulega 10-15 sekúndur.
- Flysjaðu og saxaðu engiferið og bættu út i ásamt karrýlaufunum
- Settu smátt skorinn laukinn út í og brúnaðu hann í 3-4 mínútur.
- Bættu Smjörhnetugraskerinu við ásamt túrmeriki og salti. Láttu þetta krauma og hrærðu í því annað slagið þar til graskerið er nægilega mjúkt til að skera með skeið. 15-20 mínútur.
- Ef þú vilt getur þú skreytt réttinn með ferskum kóríander og granateplafræjum. Gott með hrísgrjónum og eða linsubaunum.
Verði þér að góðu!
Ég býð upp á heildræna heilsuráðgjöf og stuðning við að finna jafnvægi í óstöðugum heimi. Flest af því sem við glímum við á rætur sínar í streitu, álagi og ofurmannlegum kröfum sem við gerum til okkar sjálfra. Heilsuvandamál eru yfirleitt hluti af stærri heild. Velkomið að hafa samband ef þú vilt og við finnum út úr því hvort og hvernig við getum best unnið saman.