Jafnvægi kyrrðar og krafts

Þegar 3ja ára barnabarnið mitt er í heimsókn í sveitinni þá lætur hann vita þegar hann er búinn að fá nóg af aksjón. Þá biður hann um að vera heima í rólegheitum með ömmu, jafnvel þegar hinir í fjölskyldunni eru að fara í ævintýraleiðangur. Hann veit hvað hann þarf. Næsta dag er hann tilbúinn í nýjar upplifanir.

Það er svo dýrmætt að hlusta á vitru röddina í líkamanum sem svarar þegar við spyrjum. Að hlusta fram hjá því sem okkur langar og á það sem við þurfum. Hvað þarf ég núna? Hvernig get ég best verið til staðar fyrir mig í dag? Hvernig get ég haldið góðu jafnvægi?

Heilsan er eins og viska sem nærir okkur. Eins og kraftur sem sprettur fram þegar við þurfum á honum að halda. Eins og ferskur andblær sem hreyfir lífið áfram, sem blæs lífi í nýjar hugmyndir og gleðiríkt líf. Ef heilsan missir ljómann þá verður lífið litlaust og andinn verður stefnulaus. Flæðandi lífsorka er undirstaða að góðri heilsu. Jóga er dásamleg leið til að koma hreyfingu á lífsorkuna og finna jafnvægi milli kyrrðar og krafts.

Flokkar

Nýjast

Vorjafndægur — hvað spírar í þínum garði?

Vorjafndægur — hvað spírar í þínum garði?

Þó vetur konungur sé enn ekki farinn að gefa okkur mjög skýr merki um að hann ætli að láta af völdum þá vitum við samt í hjarta okkar að vorið er á næsta leiti. Bjartir morgnar eru mjög kærkomnir eftir allt myrkrið. Krókusar og túlipanar eru byrjaðir að gægjast upp úr...

Smástund á morgnana sem styður við líkamann

Smástund á morgnana sem styður við líkamann

Það er margt sem breytist í líkamanum á breytingaskeiði. Svefninn verður viðkvæmari.Orkan sveiflukenndari.Innri hraði eykst stundum án þess að við skiljum af hverju. Margar konur upplifa að það sem virkaði áður virkar ekki lengur á sama hátt. En eitt af því sem getur...

Breytingaskeiðið: Þröskuldur inn í nýjan kraft

Breytingaskeiðið: Þröskuldur inn í nýjan kraft

Það er svo auðvelt að hugsa um breytingaskeiðið sem tíma sem við þurfum að þrauka til að komast út hinum megin. Tíma þar sem líkaminn verður óútreiknanlegur: svefninn breytist, hitakóf koma og fara, hugurinn verður dreifðari og meira flöktandi og orkan sveiflukennd....

Um mig

Ég heiti Guðrún. Jógakennari, rithöfundur, markþjálfi og hómópati.

Ég elska að skrifa. Skrif hjálpa mér að heyra hvísl lífsins í gegn um skarkala heimsins.

Ég styð fólk í að finna jafnvægi í óstöðugum heimi. Að gefa heilsunni rými og hlusta eftir því sem hjartað býður, fram hjá sjálfsgagnrýni og kröfum umhverfisins. Að horfa út, ekki bara um augun í höfðinu heldur líka augu líkamans. Og að skynja töfrana sem búa í Andartakinu.