Hefur þér einhvern tíma fundist þú ekki geta gert neitt rétt? Segirðu stundum hluti við sjálfa-n þig sem þú myndir aldrei segja við aðra manneskju? Það gæti hjálpað að vita að þú ert ekki sá eini eða sú eina.
Innri gagnrýnandinn er staður í þér sem trúir því að þú eða eitthvað í þér þurfi að breytast til að þú sért í lagi.
Sjálfsgagnrýni er sársaukafull. Það er auðvelt að láta bugast undan neikvæðni og leiðinlegum athugasemdum sem við beinum að okkur sjálfum. Stundum án þess að taka eftir því.
Ef við reynum að þagga niður í gagnrýnandanum verður hann bara stærri. Sem betur fer er til önnur leið.
Hugtakið “innri gagnrýnandi” er í raun ekki alveg lýsandi fyrir það sem við erum að tala um. Við notum það hér af því það er auðveldasta leiðin til að vísa til þess. En það er kannski nær lagi að tala um innra umhverfi.
Innri gagnrýni birtist venjulega ekki sem rödd. Fyrir marga birtist hún í formi líkamsskynjunar. Þrengsli í hálsinum eða í brjóstinu hnútur í maganum, kvíði, vanmáttarkennd eða skömm, Til dæmis þegar okkur finnst við vera slæmt foreldri eða vanhæf í því sem við erum að glíma við. Þú heyrir ekki gagnrýnina en þú finnur áhrifin
Það eru til leiðir til að takast á við innri gagnrýni á friðsamlegan hátt. Sjálfsmildi er mikilvægur þáttur í að lifa hamingjuríku, friðsælu lífi.