Jafnvægi kyrrðar og krafts

Þegar 3ja ára barnabarnið mitt er í heimsókn í sveitinni þá lætur hann vita þegar hann er búinn að fá nóg af aksjón. Þá biður hann um að vera heima í rólegheitum með ömmu, jafnvel þegar hinir í fjölskyldunni eru að fara í ævintýraleiðangur. Hann veit hvað hann þarf. Næsta dag er hann tilbúinn í nýjar upplifanir.

Það er svo dýrmætt að hlusta á vitru röddina í líkamanum sem svarar þegar við spyrjum. Að hlusta fram hjá því sem okkur langar og á það sem við þurfum. Hvað þarf ég núna? Hvernig get ég best verið til staðar fyrir mig í dag? Hvernig get ég haldið góðu jafnvægi?

Heilsan er eins og viska sem nærir okkur. Eins og kraftur sem sprettur fram þegar við þurfum á honum að halda. Eins og ferskur andblær sem hreyfir lífið áfram, sem blæs lífi í nýjar hugmyndir og gleðiríkt líf. Ef heilsan missir ljómann þá verður lífið litlaust og andinn verður stefnulaus. Flæðandi lífsorka er undirstaða að góðri heilsu. Jóga er dásamleg leið til að koma hreyfingu á lífsorkuna og finna jafnvægi milli kyrrðar og krafts.

Flokkar

Nýjast

Árstíðirnar í líkamanum

Árstíðirnar í líkamanum

Náttúran umbreytist við hver árstíðaskipti Hvalir ferðast langar leiðir, fuglar fljúga heimshorna á milli  til að laga sig að umskiptum árstíðanna. Laufin falla af trjánum.  Hver einasta lífvera gerir breytingar í lífsháttum sínum, dvalarstað og rútínu. Allar lífverur...

Þrjú lítil skref inn í vorið

Þrjú lítil skref inn í vorið

Náttúran speglar svo vel til okkar hvernig við getum tekist á við breytingar. Vorið kemur ekki með áhlaupi. Það vaknar hægt og hljótt. Dagarnir lengjast og birtan vex með hverju kvöldinu. Loftið hlýnar. Lífið vaknar niðri í moldinni og læðist upp á yfirborðið, næstum...

Þegar vorið kallar en veturinn er tregur að gefa eftir

Þegar vorið kallar en veturinn er tregur að gefa eftir

Það var ljúft og frískandi að koma út í birtuna í morgun. Og ég naut þess að finna vorið sem er loksins að vakna allt í kringum okkur. Hundurinn minn hafði sérstakan áhuga á tveimur gæsum sem spígsporuðu um grasið í garði eins nágranna míns. Svo tóku þær flugið með...

Um mig

Ég heiti Guðrún. Jógakennari, rithöfundur, markþjálfi og hómópati.

Ég elska að skrifa. Skrif hjálpa mér að heyra hvísl lífsins í gegn um skarkala heimsins.

Ég styð fólk í að finna jafnvægi í óstöðugum heimi. Að gefa heilsunni rými og hlusta eftir því sem hjartað býður, fram hjá sjálfsgagnrýni og kröfum umhverfisins. Að horfa út, ekki bara um augun í höfðinu heldur líka augu líkamans. Og að skynja töfrana sem búa í Andartakinu.