Að hvíla sátt í líkamanum og treysta visku hans

  •  

Persónuleg leiðsögn (einkatímar) er öruggt rými þar sem þú færð stuðning til að hlusta inn á við, tengjast líkamanum og finna hvað þjónar þér best á þessum tíma í lífinu.

Kannastu við eitthvað af þessu? 

  • Þú finnur að þær leiðir sem áður virkuðu gera það ekki lengur.

  • Þú vilt tengjast líkamanum betur og hlusta á hvað hann er að reyna að segja þér.

  • Þú finnur að eitthvað innra með þér kallar á athygli og dýpri skilning.

  • Þig langar að öðlast meiri skýrleika, ró og sjálfstraust í daglegu lífi.

Við vinnum saman að því að finna hvað þjónar þér best núna – hvort sem það er að losa um spennu, fá stuðning við heilsufarsleg vandamál, öðlast meiri skýrleika eða einfaldlega að hvíla sátt í þér. Þú lærir að hlusta á líkamann fram hjá hugmyndum þínum um sjálfa þig og tengjast betur þeirri visku sem býr innra með þér. Hafðu samband og við finnum leiðina sem styður þig á þessum tíma í lífinu.

Persónuleg ráðgjöf

Hægt er að velja um að koma á staðinn eða hittast í gegn um netið.

Þjálfun í líkamsvitund

BYGGÐU UPP TRAUST OG TENGINGU VIÐ LÍKAMANN

Lærðu að efla meðvitund þína í gegnum líkamann og nýta þá visku sem þar býr.
Við vinnum með líkama þinn sem spegil fyrir mynstur, tilfinningar og sögur – og með einföldum æfingum lærir þú að umbreyta reynslu þinni í nýjan skýrleika og kraft.

Fáðu verkfæri til þess að: Stilla taugakerfið og auka ró og jafnvægi. Takast á við streitu á mýkri hátt. Byggja upp nærveru og öryggi. Tengjast tilfinningum þínum sem boðberum og bandamönnum

Fókusing

LÆRÐU AÐ HLUSTA Á ÞITT INNRA LANDSLAG Á KÆRLEIKSRÍKAN HÁTT

Þú lærir að hlusta á visku líkamans með forvitni og sjálfsmildi að leiðarljósi. Fókusing býður okkur að tengja við dýpri stað í okkur sjálfum en bara hugsanir og tilfinningar. Það sem áður var fast eða óskýrt færist nær og vandamálið sem þú byrjaðir að skoða í upphafi „hreyfist áfram“. Þú skilur það á nýjan og ferskan hátt. Þessum nýja skilningi fylgir jákvæð umbreyting á lífi þínu. Fókusing getur t.d. nýst við úrvinnslu tilfinninga, ákvarðanatöku, sem leið til að skilja aðstæður þínar betur, ákveða næstu skref og í sköpun.

Hómópatía

VIRKJAÐU LÆKNINGAMÁTT LÍKAMANS Á HEILDRÆNAN HÁTT

Mild og náttúruleg heilsumeðferð. Ef þú kemur til hómópata með vandamál eins og krónískar sýkingar, hormónaójafnvægi eða mígreni þá virkar meðferðin á líkama og huga sem heild. Árangurinn er ekki bara bætt heilsa heldur líka aukin orka og betra jafnvægi tilfinningalega. Hómópatía hefur reynst vel gegn ýmsum kvillum eins og asma, ofnæmi, kvíða og eftirköstum eftir Covid. Hómópatía hentar líka sérstaklega vel samhliða sálfræðimeðferð.

Jógaþerapía og markþjálfun

FÁÐU STUÐNING VIÐ AÐ SETJA HEILSU OG GÓÐA LÍÐAN Í FORGANG

Lífsstíll og mataræði sem hentar þér og þinni líkamsgerð. Við skoðum í sameiningu einfaldar breytingar sem þú getur gert, eitt skref í einu til að skapa meiri vellíðan og gleði í lífinu. Þetta geta verið öndunaræfingar, jóga, hugleiðsla, mataræði, dagleg rútína, næstu skref í lífinu, úrvinnsla tilfinninga eða annað sem við finnum út í sameiningu. Í stað þess að hugsa um það sem þú vilt ekki getum við sett fókusinn þangað sem þú vilt vera.

Bowen

LOSNAÐU VIÐ VERKI, SPENNU OG EFTIRSTÖÐVAR ÁVERKA

Mild bandvefslosunartækni sem losar um spennu og slakar á líkama og huga. Við það losnar um verki og það verður endurnýjun á orku. Bowen hefur reynst vel gegn verkjum í hálsi, bakverkjum og verkjum almennt, íþróttameiðslum og öðrum meiðslum, streitutengdum vandamálum og fyrir almenna heilsu, slökun og vellíðan.

Líföndun

SPENNULOSUN OG KRAFTMIKIL ÖNDUNARVINNA

Öndunin endurspeglar þína innri líðan og viðhorf til þín og til lífsins. Líföndun er öndunarvinna með stuðningi þar sem þú losar um spennu og kyrrstæða orku og finnur fyrir kjarnanum í þér. Við skoðum í byrjun tímans hvað það er sem þú vilt vinna með og leyfum svo önduninni að leysa upp hindranir í líkamanum. Stundum fylgir því tilfinningalosun. Hugurinn verður skýrari og á eftir fylgir djúp slökun.

Námskeið í boði

Námskeiðin okkar snúast um að skapa öruggt rými til að fara inn á við og tengja við kjarnann.
Hægt er að velja um að koma á staðinn eða hittast í gegn um netið.

ANDARTAK – RÁNARGÖTU 18

Námskeið í Fókusing

Lærðu að hlusta á visku líkamans. Fókusing getur t.d. nýst við úrvinnslu tilfinninga, ákvarðanatöku, sem leið til að skilja aðstæður þínar betur, ákveða næstu skref og í sköpun.

Hefst í október

Við bjóðum upp á fleiri námskeið. Þú sérð úrvalið á námskeiðssíðunni.

KYNNINGARSAMTAL

Viltu kanna hvort við eigum samleið?

Umsagnir viðskiptavina

„Þú ert einstaklega góður hlustandi og átt auðvelt með að skapa traust. Þú skapar auðveldlega gott flæði í tíma, hvort sem er í hóp eða í einkatíma.”

GUNNAR ÞORGEIRSSON, TÓNLISTARKENNARI

„Ég hef þekkt Guðrúnu í mörg ár og leitað til hennar bæði sem hómópata, nuddara, yogakennara og nú nýverið prufað Focusing undir hennar handleiðslu. Hún hefur einstaklega hlýja nærveru og það er auðvelt að tala við hana og trúa henni fyrir hverju sem er. Hún er opin, næm, úrræðagóð og hefur áralanga reynslu í hómópatafræðum. Hennar ráð og remedíur hafa hjálpað mér og mínum börnum að vinna á ýmsum kvillum. Næmni hennar og innsæi eru góðir styrkleikar að hafa, þegar hún leiðir mann í Fókusing. Sú aðferð hefur komið mér skemmtilega á óvart.”

ELÍN KJARTANSDÓTTIR, ARKITEKT

„Hjá Guðrúnu hef ég öðlast betri heilsu og tekist á við líkamleg veikindi sem læknavísindin réðu ekki við t.d. astma og bólgur í lungum. Með árunum hef ég lært að treysta visku hennar betur og betur. Hún hlustar vel. Spyr og gefur sér góðan tíma. Hún er hvetjandi og ráðagóð, sveigjanleg og setur sig í spor sinna skjólstæðinga. Ég fer reglulega til Guðrúnar og hef gert nú í nokkur ár. Ég á henni margt að þakka og hennar remedíur hafa fært mér heilsuna oftar en einu sinni og oftar en tvisvar.”

HREFNA GUÐMUNDSDÓTTIR, FÉLAGSRÁÐGJAFI

Nám og lengri

viðburðir

2024

Hugleiðsluhelgi

Djúpt ferðalag inn á við

Febrúar 2024. Staðsetning: Síðumúla 15, 3. hæð

Helgarnámskeið. Leiðbeinandi: Guðrún Arnalds

Næsta vetur

Lærðu að kenna hugleiðslu

Hugleiðsla, öndun og möntrur.

Dýpkaðu þína eigin hugleiðsluiðkun um leið og þú lærir að kenna öðrum að hugleiða

Skráðu þig á lista yfir áhugasama ef þú vilt fá sendar nánari upplýsingar.

Svefntruflanir og hitakóf

Örnámskeið um svefntruflanir og hitakóf fyrir konur á breytingaskeiði.

  • Lærðu um mögulegar orsakir svefntruflana og kveikjur að hitakófi

  • Hitakóf og nætursviti eru ekki það sama. Lærðu að skilja muninn og hvað líkaminn er að segja þér.

  • Um hvernig mataræði og lífsstíll geta haft áhrif á einkennin þín.

  • Fáðu dýpri skilning á hormónabreytingunum og hvað þú getur gert

Ertu með spurningar?

Fylltu út formið hér að neðan til að senda mér fyrirspurn eða panta tíma. Ekki hika við að senda mér línu. Ég geri mitt besta til að svara innan 24 tíma.

10 + 8 =

Kontakt upplýsingar

Hafðu samband við mig beint í gegn um síma eða tölvupóst:

Einkatímar: Ránargötu 18 / Jógatímar: Síðumúla 15 - Yoga og heilsa