Birta

Jógaheimspekin býr yfir hugtakinu Sattva sem er einn af þremur eiginleikum lífsins. Sattva merkir ljós eða léttleiki. Birta. Önnur orð sem túlka sattva eru samhljómur, tærleiki, sköpun, jákvæðni og friðsæld. Í jóga viljum við næra Sattva og kveikja ljósflæðið í okkur.

Hinir tveir eiginleikarnir eru Rajas og Tamas. Rajas er drifkraftur hreyfingar, virkni og ástríðu. Tamas stendur fyrir sinnuleysi, deyfð og óreiðu. Tamas og Rajas eiga sér líka sinn stað í tilverunni. Allt líf er blanda af þessum þremur eiginleikum, samkvæmt jógaheimspekinni. Gott líf byggir á góðu jafnvægi þeirra. Jafnvægi er meðal annars fólgið í því að sökkva ekki of djúpt í Tamas því þá verður svo mikið átak að lyfta okkur upp aftur.

Þegar líður fram á vor er oft búið að safnast fyrir mikið af Tamas í okkur. Veturinn og myrkrið gera okkur þung og værukær. Þegar vorið er handan við hornið getur verið átak að finna kraft og tilgang í tilverunni. Orkuflæðið er hægt í gang og við fáum frekar kvef og alls kyns stíflur. Við náum stundum ekki að taka á móti allri birtunni af heilum hug þar sem veturinn hangir enn í okkur og við erum orðin svo vön vetrarkápunni.

Til að finna Sattva; tærleika og friðsæld, þurfum við að byrja þar sem við erum. Við þurfum að ferðast í gegn um Rajas. Að hreyfa okkur til að finna kraftinn og eldinn innra með okkur. Að teygja á líkamanum og finna okkar eigin takt og fá þannig útrás fyrir staðnað orkuflæðið. Við þurfum að hlusta á þyngslin og gefa þeim færi á að finna sinn farveg. Þá fyrst getum við kveikt ljós og fundið friðsæld.

Jóga hjálpar okkur að finna þennan stað í okkur sem þráir lífið, sem elskar að vera til, sem skýtur út grænum sprotum af lífsorku. Í kundalini jóga iðkum við meðvitaða hreyfingu í takti við andardráttinn. Smátt og smátt kyrrast hugurinn og lífið verður bjartara. Jógaiðkun opnar fyrir löngun til að lifa ferskara og innihaldsríkara lífi. Og lífsstíll okkar og mataræði geta á sama hátt stutt við jógaiðkunina.

Flokkar

Nýjast

Smástund á morgnana sem styður við líkamann

Smástund á morgnana sem styður við líkamann

Það er margt sem breytist í líkamanum á breytingaskeiði. Svefninn verður viðkvæmari.Orkan sveiflukenndari.Innri hraði eykst stundum án þess að við skiljum af hverju. Margar konur upplifa að það sem virkaði áður virkar ekki lengur á sama hátt. En eitt af því sem getur...

Breytingaskeiðið: Þröskuldur inn í nýjan kraft

Breytingaskeiðið: Þröskuldur inn í nýjan kraft

Það er svo auðvelt að hugsa um breytingaskeiðið sem tíma sem við þurfum að þrauka til að komast út hinum megin. Tíma þar sem líkaminn verður óútreiknanlegur: svefninn breytist, hitakóf koma og fara, hugurinn verður dreifðari og meira flöktandi og orkan sveiflukennd....

Taktu myrkrinu fagnandi

Taktu myrkrinu fagnandi

Nýtt ár gefur tilfinningu fyrir nýju upphafi. Hreinum snjó sem við getum þrammað út í og markað ný spor. Við setjum okkur markmið um að verða betri en á síðasta ári. Að skrifa nýja sögu á þetta auða blað sem nýtt ár færir okkur. Nýársheit eiga það stundum til að...

Um mig

Ég heiti Guðrún. Jógakennari, rithöfundur, markþjálfi og hómópati.

Ég elska að skrifa. Skrif hjálpa mér að heyra hvísl lífsins í gegn um skarkala heimsins.

Ég styð fólk í að finna jafnvægi í óstöðugum heimi. Að gefa heilsunni rými og hlusta eftir því sem hjartað býður, fram hjá sjálfsgagnrýni og kröfum umhverfisins. Að horfa út, ekki bara um augun í höfðinu heldur líka augu líkamans. Og að skynja töfrana sem búa í Andartakinu.