Vorið kallar!
Taktu á móti vorinu með léttleika í hjarta
6 vikna námskeið hefst 8. maí. Miðvikudaga kl 17
Frír kynningartími miðvikudaginn 8. maí.
Vorinu geta fylgt vorkvef og alls kyns stíflur áður en vorleysingarnar ná að leysa upp drunga vetrarins. Náttúran virðist eiga svo auðvelt með þetta en fyrir okkur manneskjurnar er það oft ekki eins áreynslulaust að taka á móti nýjum árstíðum. Ferðalagið úr vetri yfir í vor getur tekið sérstaklega á. Oft finnum við fyrir þunga og drunga eins og úrillur björn sem kemur hikandi út úr vetrarhýðinu.
Jóga fyrir endurnýjun, orku og innri frið. Innblástur, spjall og tækifæri til að prófa á eigin skinni endurnærandi og upplyftandi áhrif jóga.
Rými til að leysa upp vetrarstíflurnar, opna fyrir flæði lífsorkunnar og hleypa vorinu inn í huga og hjarta. Jóga, jógaviska og uplyftandi hugarfar inn í vorið.
Í hverjum tíma förum við í jóga, góða slökun og endum á hugleiðslu. Við gerum jógaæfingar og öndun sem styðja við að opna orkuflæðið og losa um uppsafnaða spennu og streitu eftir langan vetur. Stuðningur við reglulega iðkun heima fyrir þá sem vilja á milli tíma.
Vorið er tilvalinn tími til að létta á líkama og sinni. Við verðum glaðari og einbeittari og getum tekið á móti lífinu af heilum hug. Það getur hins vegar verið átak að byrja. Sérstaklega þar sem veturinn vill oft hanga í okkur á þessum árstíma og gera okkur værukær.
Besta hvatningin sem þú getur fengið er frá þér. Jógaiðkun sem miðar að því að opna orkuflæðið og finna friðsæld er dásamlega hvetjandi fyrir góðar venjur. Svo hjálpar líka að fá innblástur og fræðslu og ekki síst að vera hluti af samfélagi jógaiðkenda sem eru komnir í sama tilgangi og þú. Allt þetta verður hluti af námskeiðinu Vorið kallar!
Vorið kemur með nýtt upphaf, ferska vinda og tækifæri til að virkja lífsorkuna. Það veitir okkur innblástur til að tileinka okkur heilbrigðan lífsstíl. Jóga og hugleiðsla eru dásamleg leið til að tengja við nærandi uppsprettuna innra með okkur og bjóða lífið velkomið í hjartanu
Verð fyrir 6 vikna námskeið: 24.000
Námskeiðið er viðurkennt af Virk, starfsendurhæfingu
.
Hefst 8. maí
Í fallega salnum okkar að Síðumúla 15. Einnig hægt að taka þátt í gegn um Zoom.
6 vikna námskeið, mánudaga kl 17.00. Innifalið: Kennsla, kennslugögn, uppskriftir og verkfæri til að gera vorið léttara og skemmtilegra.
Við skoðum hvernig við getum aukið orkuflæðið í gegn um jógaiðkun og jákvætt hugarfar. Tímarnir verða fyrst og fremst iðkun, bæði á jógaæfingum og hugleiðslu. Þess á milli fá þátttakendur sendan innblástur og uppskriftir fyrir góða vorheilsu. Þú verður hluti af samfélagi þar sem við spjöllum um leiðir til að lifa lífinu lifandi og í jafnvægi.
Meðal þess sem við tökum fyrir:
Andaðu djúpt, orkugefandi og hreinsandi öndunaræfingar
Vörpum af okkur vetrardrunganum
Jóga fyrir sterkara ónæmiskerfi
Kyrr hugur, möntrur sem upplyfta
Léttum á hjartanu
Hrein ára og tær hugur
Umsagnir
Vorið kallar!
Opnaðu glugga hugans, hleyptu inn fersku lofti, birtu og nýjum sannleika!
Hjartað er eins og garður. Þú getur ræktað samkennd eða ótta, gremju eða kærleika. Hvaða fræjum ætlar þú að sá í þinn garð?
Ég býð þér að koma og njóta með okkur í taktföstum og styrkjandi jógaæfingum, öndun sem nærir þig og stækkar og hugleiðslu fyrir friðsæld og innri kyrrð.
Þjónusta sem er í boði
Lífið í jafnvægi
Ferðalag um orkustöðvarnar
Eflandi ferð í átt að aukinni sjálfsþekkingu, andlegum og líkamlegum styrk og bættri orku.
Við stöldrum við hverja orkustöð og vinnum með æfingar og hugleiðslur sem stuðla að auknu jafnvægi, meiri styrk og bættum hæfileika til að slaka á og njóta.
Einkatímar
Fáðu stuðning við að setja heilsu og góða líðan í forgang.
Heildrænt heilsuviðtal, hómópatía, markþjálfun, bowen, jógaþerapía, Fókusing.
Einkatímar og heildræn ráðgjöf sniðin að þínum þörfum. Hafðu samband og við finnum út úr því hvernig við getum best unnið saman.
Bætt líðan á breytingaskeiði
Fyrir konur sem leita náttúrulegra leiða fyrir aukna orku, hormónajafnvægi og góða heilsu. Og sem vilja gera eitthvað sjálfar til að létta á einkennum breytingaskeiðsins.
Skráning og nánari upplýsingar:
Svefntruflanir og hitakóf
Sjö vegvísar fyrir vellíðan á breytingaskeiði
- Lærðu leiðir til að draga úr hitakófi og sofa betur
- Hitakóf og nætursviti eru ekki það sama. Lærðu að skilja muninn og hvað líkaminn er að segja þér.
- Um hvernig mataræði og lífsstíll geta haft áhrif á einkennin þín.
- Fáðu dýpri skilning á hormónabreytingunum og hvað þú getur gert