Vorjafndægur — hvað spírar í þínum garði?

Þó vetur konungur sé enn ekki farinn að gefa okkur mjög skýr merki um að hann ætli að láta af völdum þá vitum við samt í hjarta okkar að vorið er á næsta leiti. Bjartir morgnar eru mjög kærkomnir eftir allt myrkrið. Krókusar og túlipanar eru byrjaðir að gægjast upp úr moldinni og gefa lífinu lit. Og á meðan við bíðum getum við að minnsta kosti farið í gönguferðir, hlustað eftir nýjum fuglahljóðum og látið okkur dreyma um vorið og sumarið.

Nú eru vorjafndægur. Þegar dagur og nótt eru jafnlöng. Ljós og myrkur mætast í jafnvægi í augnablik.

Á þessum árstíma eru undrin að gerast undir yfirborðinu. Ræturnar í moldinni vakna til lífsins, safna næringu og undirbúa vöxtinn sem kemur síðar. Og kannski er það líka þannig hjá okkur.

Eftir veturinn getum við fundið fyrir því að vera aðeins þung og lengi í gang. Líkaminn er ekki alveg kominn úr vetrarhýði. Á sama tíma finnum við oft fyrir nýrri orku sem er að vakna. Við getum fundið fyrir löngun í breytingar og um leið þörf fyrir meiri kyrrð og minna áreiti. Við erum að finna okkur leið úr vetri inn í vor. Eins og í náttúrunni gerist það ekki á einu augabragði. Það sem er að vakna þarf tíma til að styrkjast áður en það kemur upp á yfirborðið.

Vorjafndægur minna okkur á jafnvægi.

Ekki fullkomið jafnvægi, heldur lifandi jafnvægi sem er á stöðugri hreyfingu Jafnvægi milli hvíldar og hreyfingar. Milli þess að halda í og sleppa því sem við þurfum ekki lengur.

Vorjafndægur minna okkur á að stilla okkur í takt við jörðina. Að við erum hluti af náttúrunni. Líf okkar er samtvinnað öðru lífi á jörðinni. Eins og jörðin býr sig undir að blómstra, getum við gert það sama.

Á Vorjafndægrum er tilvalið að staldra við og spyrja:

Lifi ég í samhljómi við sjálfa mig og umhverfi mitt?
Hvaða fræjum langar mig að sá þetta vorið?

Gleðileg vorjafndægur!

Flokkar

Nýjast

Árstíðirnar í líkamanum

Árstíðirnar í líkamanum

Náttúran umbreytist við hver árstíðaskipti Hvalir ferðast langar leiðir, fuglar fljúga heimshorna á milli  til að laga sig að umskiptum árstíðanna. Laufin falla af trjánum.  Hver einasta lífvera gerir breytingar í lífsháttum sínum, dvalarstað og rútínu. Allar lífverur...

Þrjú lítil skref inn í vorið

Þrjú lítil skref inn í vorið

Náttúran speglar svo vel til okkar hvernig við getum tekist á við breytingar. Vorið kemur ekki með áhlaupi. Það vaknar hægt og hljótt. Dagarnir lengjast og birtan vex með hverju kvöldinu. Loftið hlýnar. Lífið vaknar niðri í moldinni og læðist upp á yfirborðið, næstum...

Þegar vorið kallar en veturinn er tregur að gefa eftir

Þegar vorið kallar en veturinn er tregur að gefa eftir

Það var ljúft og frískandi að koma út í birtuna í morgun. Og ég naut þess að finna vorið sem er loksins að vakna allt í kringum okkur. Hundurinn minn hafði sérstakan áhuga á tveimur gæsum sem spígsporuðu um grasið í garði eins nágranna míns. Svo tóku þær flugið með...

Um mig

Ég heiti Guðrún. Jógakennari, rithöfundur, markþjálfi og hómópati.

Ég elska að skrifa. Skrif hjálpa mér að heyra hvísl lífsins í gegn um skarkala heimsins.

Ég styð fólk í að finna jafnvægi í óstöðugum heimi. Að gefa heilsunni rými og hlusta eftir því sem hjartað býður, fram hjá sjálfsgagnrýni og kröfum umhverfisins. Að horfa út, ekki bara um augun í höfðinu heldur líka augu líkamans. Og að skynja töfrana sem búa í Andartakinu.